Nýtt líf

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 31. maí 2006 kl. 17:19 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 31. maí 2006 kl. 17:19 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Kvikmyndin "Nýtt líf" er fyrsta myndin af þriggja mynda seríu sem Þráinn Bertelsson skrifar og leikstýrir. Myndin var gerð 1983 og hefur hún verið sýnd í Ríkissjónvarpinu og einnig hefur hún verið gefin út á DVD. Með aðalhlutverk fara Eggert Þorleifsson og Karl Ágúst Úlfsson, en einnig koma fram Elva Ósk Ólafsdóttir, Sveinn Tómasson og Eiríkur Sigurgeirsson. Einnig er tónlistarflutningur Bjarkar Guðmundsdóttur ógleymanlegur í myndinni.

Myndin fjallar um tvo vini, Þór og Danna, sem ákveða að hefja nýtt líf í Vestmannaeyjum og ráða sig til starfa við fiskvinnslu á fölskum forsendum, en lenda í mörgum skemmtilegum atvikum og kynnast mörgum athyglisverðum persónum á dvöl sinni í Eyjum.