Nýtt líf

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 31. maí 2006 kl. 14:51 eftir Zindri (spjall | framlög) Útgáfa frá 31. maí 2006 kl. 14:51 eftir Zindri (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Kvikmyndin "Nýtt líf" er ein af þriggja mynda seríu sem Þráinn Bertelsson skrifar og leikstýrir. Myndin var gerð 1983 og hefur hún verið sýnd í Ríkissjónvarpinu og einnig hefur hún verið gefin út á DVD. Á meðal leikara eru Eggert Þorleifsson og Karl Ágúst Úlfsson. Einnig er tónlistarfluttningur Bjarkar Guðmundsdóttur ógleymanlegur í myndinni.

Myndin fjallar um tvo vini sem ákveða að hefja nýtt líf í Vestmannaeyjum og ráða sig til starfa við fiskvinnslu á fölskum forsendum, en lenda í mörgum skemmtilegum atvikum og kynnast mörgum athyglisverðum persónum á dvöl sinni þar.