Nýi-Kastali

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.

Húsið Nýi-Kastali stóð við Urðaveg. Það var tómthús, þar sem síðar stóðu Vegamót, við sunnanvert Heimatorg. Hannes lóðs var fæddur þar, en foreldrar hans keyptu það árið 1849. Það var staðsett austur af París. Að öllum líkindum er nafn hússins íslenskuð mynd af enska borgarnafninu Newcastle, en mjög algengt var að hús í Eyjum bæru slík borganöfn.