Miðgarður

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. september 2013 kl. 11:43 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. september 2013 kl. 11:43 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Miðgarður

Húsið Miðgarður við Vestmannabraut 13a. Það var reist árið 1919 af Sigurlaugu Guðmundsdóttur sem þá var orðin ekkja eftir Ísleif Guðnason, d. 1916. Nokkru seinna flutti dóttir Sigurlaugar, Matthildur Ísleifsdóttir, inn ásamt manni sínum Páli Oddgeirssyni. Matthildur bjó í húsinu til dánardags árið 1945 og Páll bjó þar til ársins 1947. Sigurlaug bjó þar til dánardags árið 1952.

Árið 1949 flutti sonur Sigurlaugar, Ólafur Ísleifsson, inn ásamt konu sinni. Ólafur bjó þar til dánardags árið 1972 en Una bjó seinni ár sín á elliheimili.

Miðgarð á nú Jóhanna María Finnbogadóttir og býr hún þar. Einnig leigir Ástþór Ægir Gíslason í kjallara.

Helstu atriði í eigenda- og íbúasögu



Heimildir

  • Bergljót Pálsdóttir, munnleg heimild.
  • Georg Ólafur Tryggvason, munnleg heimild.
  • Vestmannabraut. Verkefni unnið af þátttakendum á námskeiðinu Húsin í götunni. Vestmannaeyjar, 2004.