Minningarvefur um Pál Steingrímsson/Náttúruunnandi og ævintýramaður

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 3. júlí 2019 kl. 13:12 eftir Vpj1985 (spjall | framlög) Útgáfa frá 3. júlí 2019 kl. 13:12 eftir Vpj1985 (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit


Náttúruunnandi og ævintýramaður


Ævintýraþráin togaði ávallt í Pál. Hann hafði sem ungur drengur mikla unun af náttúrunni og lífríkinu í Eyjum. Það má segja að þessi svokallaða þrá hafi aukist eftir því sem árunum leið. Páll barðist ávallt fyrir náttúruvernd (Ólafur J. Engilbertsson, 2009) og var hann meðal annars einn af hvatamönnum að mótmælum á malartöku í Helgafelli (Páll Magnússon o.fl., 2016).
Eftir að Páll hafði fengið veiðirétt í einni af úteyjum Eyjanna, Hellisey, eyddi hann ótal mörgum stundum þar, meðal annars í fuglaveiði, eggjatínslu, fjárflutninga og fleira. Páll ferðaðist víða um skerin í Hellisey en einnig var hann tíður gestur í Elliðaey, Bjarnarey, Álsey og Suðurey. Þar átti hann margar góðar stundir með vinum og vandamönnum og eru sögurnar margar af Páli og félögum á þessum slóðum (Ólafur J. Engilbertsson, 2009). Annars konar veiði sem Páll stundaði af miklum eldmóð var gæsaveiði, en henni fylgdi, líkt og með lundaveiðinni, tilheyrandi útilegur í skemmtilegum félagsskap (Páll Magnússon o.fl., 2016).