Matthías Gunnlaugsson (bílasali)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 31. janúar 2019 kl. 15:47 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 31. janúar 2019 kl. 15:47 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Matthías Vilhjálmur Gunnlaugsson.

Matthías Vilhjálmur Gunnlaugsson bifreiðastjóri, bílasali í Reykjavík fæddist 24. júlí 1919 í Dölum og lést 21. mars 1973.
Foreldrar hans voru Gunnlaugur Ásmundsson sjómaður, f. 19. apríl 1885 á Karlsstöðum Vöðlavík í S-Múl., d. 19. febrúar 1951, og kona hans Þorgerður Guðrún Jónsdóttir frá Dölum, f. 26. maí 1896, d. 5. febrúar 1933.

Börn Gunnlaugs og Guðrúnar voru:
1. Jóna Þorgerður Gunnlaugsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 2. október 1917 á Norðfirði, d. 25. október 1987.
2. Matthías Vilhjálmur Gunnlaugsson bifreiðastjóri, bílasali í Reykjavík, f. 24. júlí 1919, d. 21. mars 1973.
3. Ásmundur Þórarinn Gunnlaugsson, f. 6. mars 1921 í Framtíð, d. 24. ágúst 1921.
4. Ástvaldur Gunnlaugsson verkamaður, verktaki í Reykjavík, f. 3. september 1924 í Framtíð, d. 11. apríl 2007.

Matthías var með foreldrum sínum í Eyjum, var með þeim í Dölum 1920, í Framtíð 1921 og enn 1927, í Landlyst 1930, í Sandprýði 1933.
Guðrún móðir hans lést 1933.
Matthías var með föður sínum og systkinum á Þingeyri 1934.
Hann fluttist úr Eyjum 1938, vann við bifreiðaakstur og síðan bifreiðasölu. Hann lést 1973.

Kona Matthíasar var Steinunn Loftsdóttir húsfreyja, f. 13. júní 1928. Foreldrar hennar voru Loftur Sigfússon sjómaður, f. 20. nóvember 1888, d. 1. ágúst 1959, og kona hans Elín Kristín Jónína Salómonsdóttir húsfreyja, f. 14. september 1895, d. 29. júlí 1968.
Börn þeirra:
1. Guðrún Gunnlaug Matthíasdóttir húsfreyja, atvinnurekandi í Kópavogi, f. 3. júlí 1946. Maður hennar er Baldur Jónsson byggingameistari frá Kirkjudal.
2. Kristinn Loftur Matthíasson leigubifreiðastjóri í Reykjavík, f. 4. desember 1950. Kona hans er Droplaug Stefánsdóttir.
2. Ása Þórunn Matthíasdóttir húsfreyja, stuðningsfulltrúi, f. 25. apríl 1952. Maður hennar er Örn Ingólfsson.
3. Erla Gerður Matthíasdóttir húsfreyja, atvinnurekandi, f. 29. nóvember 1954. Maður hennar er Kristinn Valdimarsson.
4. Matthildur Sonja Matthíasdóttir starfsmaður á elliheimili, f. 24. janúar 1956.
5. Ásdís Matthíasdóttir húsfreyja, f. 26. maí 1959. Maður hennar er Árni Georgsson.
6. Sigríður Halldóra Matthíasdóttir einkaþjálfari, f. 3. mars 1962, ógift.
Barn Steinunnar með Ingva Ólafssyni er
7. Reynir Pétur Steinunnarson göngugarpur, f. 25. október 1948.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.