Matthías Finnbogason

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. ágúst 2013 kl. 21:27 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. ágúst 2013 kl. 21:27 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Matthías Finnbogason frá Litlhólum fæddist 25 apríl 1882. Matthías lærði um meðferð véla í Kaupmannahöfn og aflaði hann sér mikillar þekkingar á því sviði. Tókst honum að loknu námi að útvega sér nægilegan fjárhagslegan stuðning erlendis til að kaupa tæki og verkfæri til að stofna viðgerðarverkstæði heima í Eyjum. Matthías reisti svo viðgerðarverkstæðið Jaðar sem var fyrsta járnsmíðaverkstæði í Eyjum. Lést hann 9 júní 1969.

Önnur umfjöllun á Heimaslóð: Ritverk Árna Árnasonar/Matthías Finnbogason


Heimildir