„Matthildur Björnsdóttir (Litlabæ)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Matthildur Björnsdóttir''' frá Litlabæ, síðar húsfreyja í Utah fæddist 2. nóvember 1878 í Beggjakoti í Selvogi og lést 20. mars 1922 í Bliss, Owyhee í...)
 
m (Verndaði „Matthildur Björnsdóttir (Litlabæ)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 1. febrúar 2016 kl. 17:51

Matthildur Björnsdóttir frá Litlabæ, síðar húsfreyja í Utah fæddist 2. nóvember 1878 í Beggjakoti í Selvogi og lést 20. mars 1922 í Bliss, Owyhee í Idaho.
Foreldrar hennar voru Björn Runólfsson trésmiður frá Stóra-Gerði, f. 7. febrúar 1849 í Gerði, d. 27. ágúst 1932 í Spanish Fork, og kona hans Sigríður Marín Sigvaldadóttir húsfreyja, f. 14. ágúst 1851 á Snæringsstöðum í Auðkúlusókn, A-Hún., d. 16. janúar 1939 í Utah.

Matthildur var með foreldrum sínum frá fæðingu og fluttist með þeim til Utah 1887.
Hún giftist John ... og bjó síðast í Bliss, Owyhee í Idaho-fylki.
Barna er ekki getið.
Hún lést 1922.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • The Icelanders in Utah. La Nora Allsted.
  • Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.