Matthildur Þórarinsdóttir (Löndum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.

Matthildur Þórarinsdóttir húsfreyja, læknaritari, f . 30. nóvember 1943 í Hlíðarhúsi.
Foreldrar hennar voru Þórarinn Hallbjörnsson matsveinn, bryti, f. 7. ágúst 1916 á Seyðisfirði, d. 3. febrúar 1978, og kona hans Hildur Þóra Þórarinsdóttir frá Lundi, húsfreyja, f. 29. maí 1918 á Lundi, d. 17. júní 1975.

Börn Hildar Þóru og Þórarins:
1. Hallbjörn Þórarinn Þórarinsson matsveinn, bryti í Reykjavík, f. 21. júlí 1940 í Eyjum.
2. Matthildur Þórarinsdóttir húsfreyja, læknaritari, f . 30. nóvember 1943 í Hlíðarhúsi.
3. Hlíf Þórarinsdóttir húsfreyja, læknaritari, f. 30. júní 1951. Maður hennar er Ólafur Ólafsson.

Matthildur var með foreldrum sínum í æsku, í Hlíðarhúsi og á Löndum.
Hún fluttist með þeim til Reykjavíkur 1951.
Matthildur var læknaritari á Landakotsspítalanum og síðan hjá Röntgen Domus Medica í 20 ár.
Þau Þórir giftu sig 1966 og eignuðust tvö börn.

I. Maður hennar, (3. desember 1966), er Þórir Svansson prentari við Morgunblaðið, f. 10. maí 1944. Foreldrar hans voru Svanur Steindórsson prentari, f. 10. nóvember 1919, d. 8. desember 1989, og kona hans Hulda Karlsdóttir húsfreyja, f. 2. október 1918, d. 1. desember 1980.
Börn þeirra:
1. Jóhann Karl Þórisson yfirlögregluþjónn, f. 8. júlí 1966. Kona hans er Rakel Bjarnadóttir.
2. Íris Hulda Þórisdóttir húsfreyja, forstöðumaður fjárfestatengsla hjá Iceland Air Group, f. 11. apríl 1969. Maður hennar er Jón Páll Jónsson.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Bergsætt II. útgáfa. Guðni Jónsson 1966.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Matthildur Þórarinsdóttir.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.