Martea Guðlaug Pétursdóttir (Oddsstöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 12. nóvember 2020 kl. 20:12 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. nóvember 2020 kl. 20:12 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Martea Guðlaug Pétursdóttir.

Martea Guðlaug Pétursdóttir húsfreyja á Oddsstöðum fæddist 1. mars 1877 í Þorlaugargerði og lést 24. júní 1921.
Foreldrar hennar voru Pétur bóndi í Þorlaugargerði Benediktsson frá Búðarhólshjáleigu í A-Landeyjum og fyrri kona Péturs Kristín Guðmundsdóttir frá Búðarhóli í A-Landeyjum.

Maður Marteu Guðlaugar (19. nóvember 1899) var Guðjón Jónsson bóndi, líkkistusmiður og bjargveiðimaður á Oddsstöðum, fæddur 27. desember 1874, dáinn 25. október 1959. Hún var fyrri kona hans.
Martea Guðlaug stýrði fjölmennu heimili. M.a. hvíldi á henni að annast reitingu og aðra meðferð bjargveiðinnar og matartiltekt fyrir hverja sókningu á veiðitímanum.
Hún veiktist af krabbameini og barðist við sjúkdóminn hátt í áratug, áður en yfir lauk.
Börn Marteu Guðlaugar og Guðjóns voru:
1. Kristófer, f. 27. maí 1900, d. 11. apríl 1981.
2. Pétur, f. 12. júlí 1902, d. 21. ágúst 1982.
3. Jón, f. 2. ágúst 1903, d. 12 febrúar 1967.
4. Herjólfur, f. 25. desember 1904, d. 31. janúar 1951.
5. Fanný, f. 4. mars 1906, d. 26. nóvember 1994.
6. Njáll Guðjónsson, f. 31. mars 1907, d. 16. janúar 1909 samkv. dánarskrá, en skráður tveggja mánaða gamall þar.
7. Njála, f. 22. desember 1909, d. 16. apríl 1997.
8. Guðmundur, f. 28. janúar 1911, d. 18. desember 1969.
9. Árni Guðjónsson, f. 21. júní 1912, d. 2. júní 1923.
10. Ósk, f. 15. júlí 1914, d. 1. febrúar 2006.
11. Guðrún Guðjónsdóttir, f. 12. september 1915, d. 22. nóvember 1918.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.