Mariane Dorothea Kaspersen Frahm

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 27. apríl 2015 kl. 10:59 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 27. apríl 2015 kl. 10:59 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Mariane Dorothea Kaspersen Frahm“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Mariane Dorothea Kaspersen Frahm húsfreyja í Kornhól fæddist 10. mars 1805.
Hún fluttist til Eyja með manni sínum Johannes Frahm verslunarstjóra 1839. Þeim fylgdu 4 barna þeirra.
Mariane Dorothea eignaðist Jens Jacob 1840.
Hjónin skildu og hún fluttist frá Eyjum 1841 með börnin.

Maður Hennar var Johannes Frahm verslunarstjóri í Garðinum, síðar bóndi í Hólmahjáleigu í A-Landeyjum, f. 2. ágúst 1800 í Danmörku og lést 24. október 1851 í Hólmahjáleigu.
Börn þeirra, sem fylgdu þeim ekki til Eyja:
1. Carl Johannes Frahm, f. 1827, var á lífi 1853.
2. Hans Jochum Frahm, f. 1833, á lífi 1853.
Börn fædd í Danmörku og komu til Eyja með foreldrum sínum:
3. Marie Dorothe Frahm, f. 19. maí 1829, var á lífi 1853.
4. Anne Emilie Frahm, f. 12. september 1830, var á lífi 1853.
5. Jörgen Frahm, f. 8. apríl 1836.
6. Peter Emil Frahm, f. 9. maí 1838, var á lífi 1853.
Barn fætt í Eyjum:
7. Jens Jacob Benedictsen, f. 2. júlí 1840, var á lífi 1853.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.