Margrét Gísladóttir (Steinmóðshúsi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. ágúst 2015 kl. 17:20 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. ágúst 2015 kl. 17:20 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Margrét Gísladóttir vinnukona fæddist um 1796 í Húsatóftum í Grindavík og lést 15. mars 1837 í Steinmóðshúsi.

Margrét var 5 ára í fóstri hjá sr. Benedikt Ingimundarsyni á Stað í Grindavík 1801. Hún var vinnukona í Húsatóftum 1822.
Margrét var komin til Eyja 1835 og var þá vinnukona hjá Jóni Þorgeirssyni og Elínu Einarsdóttur í Kastala, var í Steinmóðshúsi 1836, 41 árs, lést þar 1837 „úr steinasótt“.
Hún var ógift og barnlaus í Eyjum.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.