Margrét Guðnadóttir (Kirkjubæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 15. ágúst 2015 kl. 22:03 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 15. ágúst 2015 kl. 22:03 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Margrét Guðnadóttir húsfreyja á Oddsstöðum, Kirkjubæ og Búastöðum fæddist 1767 og lést 20. febrúar 1842 í Dölum.

Margrét var húsfreyja á Oddsstöðum 1792, Kirkjubæ 1801 með Gísla og Kristínu dóttur þeirra tveggja ára. Þar var einnig Guðrún Guðnadóttir 26 ára fátæklingur, d. 23. mars 1804. Margrét var húsfreyja á Búastöðum 1816 með Gísla og barninu Kristínu Gísladóttur 17 ára.
Hún var 68 ára ekkja, fátæklingur á Ofanleiti 1835, 73 ára fátæklingur á Vilborgarstöðum 1840.
Margrét lést í Dölum 1841.

(Dánar- og giftingaskrár fyrst haldnar 1785, fæðingaskrár 1786).
Ekki er ólíklegt, að foreldrar Margrétar hafi verið Guðrún Lafranzdóttir húsfreyja, f. 1746, d. 4. mars 1816, og maður hennar Guðni Sveinsson bóndi á Vilborgarstöðum, f. 1724, d. 28. ágúst 1792.
Systur hennar hafa líklega verið:
1. Guðrún Guðnadóttir, f. 1773, d. 23. mars 1804.
2. Þóra Guðnadóttir, f. 1774, d. 26. desember 1797.
3. Sesselja Guðnadóttir, f. 1779, d. 16. september 1808.
4. Ingibjörg Guðnadóttir, d. 1. margs 1785 úr ginklofa, lifði 6 daga.
Þá hefur hálfsystir þeirra verið
5. Kristín Guðnadóttir húsfreyja í Skálakoti u. Eyjafjöllum 1801, f. 1766.

Maður Margrétar, (7. nóvember 1892), var Gísli Brandsson bóndi, f. 1753, d. 17. janúar 1826. Margrét var síðari kona hans.
Börn þeirra hér:
1. Ingibjörg Gísladóttir, f. 19. nóvember 1793, finnst ekki síðan, d. líklega fyrir fæðingu Ingibjargar annarrar í febrúar 1796.
2. Guðmundur Gíslason, f. 15. nóvember 1794, d. 21. nóvember 1794 úr ginklofa.
3. Ingibjörg Gísladóttir, f. í febrúar 1796, d. 27. febrúar 1796, lifði 6 daga, dó úr ginklofa.
4. Kristín Gísladóttir, f. 19. mars 1797, d. 26. mars 1797 úr ginklofa.
5. Kristín Gísladóttir, f. 20. júní 1798, d. 11. nóvember 1827.
6. Guðmundur Gíslason, f. 20. ágúst 1804, d. 29. ágúst 1804 úr ginklofa.
7. Jón Gíslason, f. 22. september 1808 á Búastöðum, jarðs. 2. október 1808, lifði 5 daga, dó úr ginklofa.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.