Margrét Vigfúsdóttir (Gerði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.

Margrét Vigfúsdóttir vinnukona fæddist 4. febrúar 1853 á Bryggjum í A-Landeyjum.
Foreldrar hennar voru Vigfús Magnússon tómthúsmaður, sjómaður í Presthúsum og síðar í Hólshúsi, f. 9. október 1815 lést af vosbúð á skipinu „Ægi“ í Útilegunni miklu 25. febrúar 1869.
Móðir Margrétar var Guðrún Sigurðardóttir húsfreyja, f. 1. janúar 1827, d. 13. maí 1882.

Systkini Margrétar voru:
1. Sigurður Vigfússon, (Siggi Fúsa) á Fögruvöllum.
2. Kristín Vigfúsdóttir húsfreyja í Uppsölum.
3. Magnús Vigfússon í Presthúsum.
Föðursystir þeirra var
4. Sigríður Magnúsdóttir í Brekkuhúsi.
Móðursystur þeirra voru:
1. Guðrún Sigurðardóttir yngri, húsfreyja, f. 6. apríl 1834, d. 31. ágúst 1897 í Vesturheimi.
2. Járngerður Sigurðardóttir húsfreyja í Draumbæ, Túni og Stóra-Gerði, f. 17. september 1830, d. 23. desember 1876.
Þær voru hálfsystur, af sama föður,
3. Þuríðar Sigurðardóttur húsfreyju á Löndum, síðar á Stokkseyri, f. 23. september 1821, d. 8. mars 1910.

Margrét var tökubarn á Bryggjum hjá Sigurði Ögmundssyni og Sigríði Magnúsdóttur föðursystir sinni 1860, vinnukona þar 1870, fluttist með þeim úr Landeyjum að Brekkuhúsi 1879, var þar vinnukona á því ári og ól Þorgerði í júní. Hún var vinnukona í Garðinum 1880, en Þorgerður var tökubarn í Þorlaugargerði, vinnukona á Gjábakka 1881 með Þorgerði hjá sér, með hana hjá sér í Frydendal 1882, þar með hana 1883 og nú „mormóni“ ritað á blaðrönd, og enn 1884.
Þorgerður lést 1885 og Margrét fluttist úr Eyjum á því ári, en ekki var skráð hvert.

I. Barnsfaðir Margrétar var Sigurður Sigurðsson vinnumaður frá Snotru í Landeyjum, f. um 1845.
Barn þeirra var
1. Þorgerður Sigurðardóttir, var í Þorlaugargerði 1880, f. 27. júní 1879, d. 20. mars 1885.

II. Barnsfaðir Margrétar var Bjarni Sveinsson vinnumaður á Rauðafelli u. Eyjafjöllum og í Eyjum, fór til Vesturheims 1888 frá Vestdal í Seyðisfirði, f. 13. maí 1855 í Sólheimahjáleigu í Mýrdal, d. 12. maí 1935. Hann bjó í Blaine í Washington-fylki.
Barn þeirra:
2. Þorgerður Bjarnadóttir, f. 17. maí 1886, fór til Vesturheims 1887 frá Austdal.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Magnús Haraldsson.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.