Margrét Sigurjónsdóttir (Þingeyri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 6. nóvember 2018 kl. 20:56 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 6. nóvember 2018 kl. 20:56 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Margrét Sigurjónsdóttir.

Margrét Sigurjónsdóttir frá Þingeyri, húsfreyja, verkakona, verslunarstjóri, saumakona fæddist 20. desember 1923 í Pálshúsi og lést 21. nóvember 2016 í Hraunbúðum.
Foreldrar hennar voru Sigurjón Sigurðsson bátsformaður og síðar fisksali, f. 6. mars 1890 í Hallgeirsey í A-Landeyjum, dáinn 8. júní 1959, og kona hans Kristín Óladóttir húsfreyja, f. 17. mars 1889 í Sandhúsi í Mjóafirði eystri, d. 1. september 1975.

Börn Kristínar og Sigurjóns:
1. Sigurbjörg Sigurjónsdóttir húsfreyja, f. 27. desember 1910 í Brekkuhúsi, d. 24. júní 1971, gift Boga Ólafssyni skipstjóra, f. 1. nóvember 1910, d. 1. janúar 2003.
2. Sigurður Óli Sigurjónsson skipstjóri, f. 24. janúar 1912 á Kirkjulandi, d. 16. júní 1981. Kona hans var Jóhanna Kristín Helgadóttir húsfreyja, f. 9. október 1915 í Eyjum, d. 7. október 2000.
4. Aðalheiður, dó þriggja ára.
5. Jóhanna Sigurjónsdóttir húsfreyja, kaupkona, f. 21. ágúst 1915 á Mosfelli, d. 28. mars 1989, gift Sigurði Guðmundssyni brunaverði, f. 12. ágúst 1918, d. 15. nóvember 1992.
6. Ragnhildur Sigurjónsdóttir húsfreyja, f. 16. júlí 1918 í Gvendarhúsi, d. 4. júlí 2009, gift Sigurði Eyjólfssyni prentara í Reykjavík.
7. Drengur, tvíburi við Ragnhildi, fæddist og dó sama dag.
8. Margrét Sigurjónsdóttir húsfreyja, f. 20. desember 1923 í Pálshúsi, d. 21. nóvember 2016, gift Elíasi Gunnlaugssyni skipstjóra, f. 22. febrúar 1922.
9. Aðalheiður Sigurjónsdóttir húsfreyja, f. 16. maí 1926 á Þingeyri, gift: 1) Antoni Jónssyni skipasmið, f. 4. febrúar 1924, d. 18. janúar 2009. Þau skildu, 2) Gísla Ólafssyni bifreiðastjóra, f. 21. júní 1926, d. 20. október 2002.
Fóstursonur Kristínar fyrstu ár ævi sinnar var
10. Ingvi Rafn Jónsson sjómaður, verkamaður, f. 31. júlí 1937, sonur Jóhönnu dóttur hennar. Hann kom til móður sinnar, er hún fór að búa.
Börn Sigurjóns og síðari konu hans Ingibjargar Högnadóttur:
11. Sigurjón Sigurjónsson, f. 12. maí 1932, fórst í flugslysi 31. júlí 1951.
12. Marta Sigurjónsdóttir húsfreyja, f. 5. febrúar 1936.


ctr


Kristín Óladóttir og börn.

Aftari röð frá vinstri: Sigurbjörg Sigurjónsdóttir (Stella), Ragnhildur Sigurjónsdóttir (Bubba), Sigurður Sigurjónsson''(Siggi, skipstjóri á Freyju), Jóhanna Sigurjónsdóttir, (Hanna).
Fremri röð frá vinstri: Aðalheiður Sigurjónsdóttir (Lalla), frú Kristín, Margrét Sigurjónsdóttir (Maggý). (Blik 1974).


Margrét var með foreldrum sínum í æsku, í Pálshúsi, á Þingeyri 1925 og 1927, síðan með þeim á Grímsstöðum fram yfir 1930, er þau skildu. Hún fylgdi móður sinni, var með henni á Grímsstöðum 1933, á Auðsstöðum 1934 og Einidrangur|Einidrangi]] 1940.
Margrét vann á saumastofu í Reykjavík á yngri árum, fluttist aftur til Eyja, hóf þá störf í verslun Helga Benediktssonar. Eftir það vann hún í Hraðfrystistöð Vestmannaeyja, Vinnslustöðinni hf. og síðan í Kaupfélagi Vestmannaeyja. Þar var hún verslunarstjóri í vefnaðarvörudeild. Hún lauk síðan starfsævi sinni á saumastofu Sjúkrahúss Vestmannaeyja.
Þau Elías bjuggu á Heimagötu 30 við giftingu 1944 og 1945, eignuðust Hjördísi á Þingeyri 1946, eignuðust Viðar og Björk á Boðaslóð 17 1956 og bjuggu þar við Gos 1973 og einnig 1986. Þau bjuggu á Brimhólabraut 5 2015. Margrét lést í Hraunbúðum 2016.
I. Maður Margrétar, (14. október 1944), var Elías Gunnlaugsson frá Gjábakka, skipstjóri, f. 22. febrúar 1922.
Börn þeirra:
1. Hjördís Elíasdóttir, f. 14. október 1946 á Þingeyri.
2. Viðar Elíasson, f. 1. júlí 1856 á Boðaslóð 17.
3. Björk Elíasdóttir, f. 1. júlí 1956 á Boðaslóð 17.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íbúaskrá Vestmannaeyja 1972.
  • Íbúaskrá Vestmannaeyja 1979.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Morgunblaðið 10. desember 2016. Minning.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.