Margrét Jónsdóttir (Gjábakka)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. febrúar 2016 kl. 14:16 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. febrúar 2016 kl. 14:16 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Margrét Jónsdóttir húsfreyja á Gjábakka fæddist 27. maí 1835 í Eyjum og lést 6. febrúar 1916.
Foreldrar hennar voru Jón Einarsson sjávarbóndi á Gjábakka, f. á Efra-Hvoli í Hvolhreppi 1792, og kona hans Sigríður Sæmundsdóttir húsfreyja á Gjábakka, f. 1796á Sámsstöðum í Fljótshlíð.
Margrét dvaldi með foreldrum sínum uns hún giftist Ingimundi 1858, en bjó þó áfram á Gjábakka öll sín búskaparár, í húsmennsku síðustu árin.

Maður Margrétar, (1858), var Ingimundur Jónsson bóndi, formaður og hreppstjóri á Gjábakka, f. 20. ágúst 1829, d. 25. apríl 1912.
Börn Margrétar og Ingimundar hér:
1. Jón Ingimundarson skipasmiður og útvegsmaður í Mandal, f. 3. ágúst 1855, d. 21. apríl 1937, kvæntur Sigríði Guðnýju Guðmundsdóttur húsfreyju, f. 22. apríl 1957, d. 12. maí 1914.
2. Þóranna Ingimundardóttir ljósmóðir í Nýborg, f. 16. janúar 1859, d. 14. mars 1929, gift Sigurði Sveinssyni bónda, útgerðarmanni og smið, f. 28. júlí 1841, d. 11. maí 1929.
3. Stefán Ingimundarson, f. 17. ágúst 1860, d. 11. febrúar 1866 „úr uppdráttarveiki“.
4. Sigríður Ingimundardóttir vinnukona, f. 8. desember 1861, d. 19. apríl 1898.
5. Sigurlaug Ingimundardóttir, f. 14. maí 1864, d. 23. maí 1864 úr ginklofa.
6. Ingveldur Ingimundardóttir, f. 1. apríl 1865, d. 8. apríl 1865 „af almennum ungbarnaveikleika“.
7. Sigurður Ingimundarson, f. 28. apríl 1866, d. 6. maí 1866 úr ginklofa.
8. Kristján Ingimundarson útvegsbóndi og fiskimatsmaður í Klöpp, f. 26. júní 1867, d. 14. október 1952, kvæntur Sigurbjörgu Sigurðardóttur húsfreyju, f. 3. maí 1861, d. 10. mars 1931..
Þau voru foreldrar Guðfinnu Kristjánsdóttur konu Georgs Gíslasonar.
9. Ingveldur Ingimundardóttir, f. 2. janúar 1870, d. 3. júní 1873.
10. Sigurður Ingimundarson, f. 12. júní 1872, d. 31. maí 1890 úr lungnabólgu.
11. Sesselja Ingimundardóttir húsfreyja, f. 16. september 1874, d. 1. apríl 1949, gift Jóni Einarssyni kaupmanni og útgerðarmanni á Stóra Gjábakka, f. 8. apríl 1867, d. 19. desember 1936.
12. Jónína Björg Ingimundardóttir vinnukona, f. 9. apríl 1877, d. 3. janúar 1930.
13. Guðrún Ingimundardóttir, f. 9. apríl 1879, d. 2. september 1879 úr „sáraveiki“.
14. Fríður Ingimundardóttir húsfreyja, f. 23. maí 1881, d. 8. júní 1950, gift Jóni Hjálmarssyni útgerðarmanni í Sætúni, f. 24. október 1890, d. 18. nóvember 1945.
Barn Ingimundar með Hólmfríði Guðmundsdóttur í Fagurlyst,
10. Páll Ingimundarson, f. 1854, d. 19. mars 1902. Hann ólst upp á Gjábakka um skeið.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.