„Margrét Jónsdóttir (Ólafshúsum)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Margrét Jónsdóttir''' frá Ólafshúsum fæddist 30. október 1862, var á lífi 1940.<br> Foreldrar hennar voru Jón Jónsson bóndi í Ól...)
 
m (Verndaði „Margrét Jónsdóttir (Ólafshúsum)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 29. mars 2016 kl. 12:23

Margrét Jónsdóttir frá Ólafshúsum fæddist 30. október 1862, var á lífi 1940.
Foreldrar hennar voru Jón Jónsson bóndi í Ólafshúsum, f. 19. ágúst 1816, drukknaði 22. september 1865, og kona hans Vilborg Jónsdóttir húsfreyja, f. 27. október 1823, d. 29. október 1878.

Margrét missti föður sinn, er hún var tæpra þriggja ára.
Hún var með móður sinni í Ólafshúsum 1870, var fósturbarn hjá Kristínu Einarsdóttur húsfreyju og Þorsteini Jónssyni í Nýjabæ frá 1872, léttastúlka þar 1880, vinnukona þar frá 1882-1883.

Hún fór síðar til Vesturheims, bjó í Manitoba í Kanada, svo og í Bellingham og Blaine í Washington-fylki í Bandaríkjunum.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.