Margrét Þ. Sigurðardóttir (Hruna)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 21. febrúar 2018 kl. 15:10 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 21. febrúar 2018 kl. 15:10 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Margrét Sigurðardóttir (Hruna)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit
Margrét Þ. Sigurðardóttir.

Margrét Þorleifsdóttir Sigurðardóttir frá Hruna, húsfreyja, fiskverkakona fæddist 3. febrúar 1925 í Sjávarborg við Sjómannasund og lést 26. janúar 2012 á Hrafnistu í Hafnarfirði.
Foreldrar hennar voru Sigurður Þorleifsson verkamaður, f. 16. ágúst 1886 á Á á Síðu, V-Skaft., d. 15. maí 1969, og kona hans Margrét Vigdís Gunnlaugsdóttir húsfreyja, f. 6. janúar 1898 í Uppsalakoti á Svarfaðardal, Eyjafj.s., d. 19. júlí 1965.

Börn Margrétar og Sigurðar:
1. Gunnlaugur Sigurðsson sjómaður, f. 20. maí 1921 að Reynifelli við Vesturveg 15b, d. 29. nóv. 1963.
2. Sigríður Sigurðardóttir húsfreyja, f. í Nikhól við Hásteinsveg 22. júní 1922, d. 22. september 2004.
3. Una Guðrún Rósamunda Sigurðardóttir húsfreyja, f. að Eiðum við Kirkjuveg 6. ágúst 1923, d. 30. apríl 1978.
4. Margrét Þorleifsdóttir Sigurðardóttir húsfreyja, f. 3. febr. 1924 í Sjávarborg við Sjómannasund, d. 26. janúar 2012.
5. Fjóla Sigurðardóttir húsfreyja, f. 17. ágúst 1928 í Hruna við Miðstræti, d. 8. nóvember 2013.
6. Pálína Sigurðardóttir húsfreyja, f. 22. okt. 1929 í Hruna.
7. Eiríkur Sigurðsson sjómaður, útgerðarmaður, verkamaður, bifreiðastjóri f. 31. jan. 1931 í Hruna, d. 28. nóvember 2007.
8. Oddný Sigurrós Sigurðardóttir (Rósa) húsfreyja, f. 1. okt. 1933 í Hruna, d. 25. febrúar 2013.
9. Einara Sigurðardóttir húsfreyja, f. 17. jan. 1936 í Hruna.
Barn Margrétar:
10. Pétur Sveinsson, f. 16. maí 1918 í Baldurshaga á Fáskrúðsfirði, bifreiðastjóri, síðast í Reykjavík, d. 8. september 1985.

Margrét var með foreldrum sínum 1934, en fór fljótlega í fóstur að Söndum í Meðallandi. Þar hafði búið Margrét föðursystir hennar, en var látinn. Ekkillin maður hennar, Páll Pálsson, og bústýra hans Sigríður Sæmundsdóttir tóku Margréti að sér og ólu upp.
Hún leitaði sér atvinnu í Eyjum 16 ára, dvaldi þar fá ár, en snéri til Reykjavíkur.
Þau Guðbergur giftu sig 1951, eignuðust þrjár dætur, fluttust ti Hafnarfjarðar og þar vann Margrét við fiskiðnað, hjá Bæjarútgerð Hafnarfjarðar og hjá Norðurstjörnunni.
Guðbergur lést 1988. Margrét dvaldi að síðustu á Hrafnistu í Hafnarfirði og lést þar 2012.

I. Maður Margrétar, (3. februar 1951), var Guðbergur Þorsteinsson frá Mýrarkoti á Álftanesi, f. 24. ágúst 1922, d. 11. september 1988. Foreldrar hans voru Þorsteinn Brandsson sjómaður, háseti, f. 9. ágúst 1883 á Seyðisfirði, d. 28. júní 1958, og kona hans Þóra Jónsdóttir húsfreyja, f. 4. ágúst 1889 í Árbæjarhjáleigu í Flóa, d. 3. desember 1979.
Börn Margrétar og Guðbergs:
1. Sigríður Pálína Guðbergsdóttir, f. 29. september 1944. Barnsfaðir Birkir Skúlason.
2. Steinþóra Guðbergsdóttir, f. 22. febrúar 1949. Barnsfaðir Hjörtur Gunnarsson Laxdal.
3. Margrét Sigríður Guðbergsdóttir, f. 5. september 1950. Maður hennar Baldur Björnsson.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Morgunblaðið 7. febrúar 2006. Minning.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.