Margrét Þóroddsdóttir (Elínarhúsi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 15. ágúst 2015 kl. 21:39 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 15. ágúst 2015 kl. 21:39 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Margrét Þóroddsdóttir húsfreyja í Elínarhúsi og í Háagarði fæddist 29. júlí 1772 í Gerðakoti u. Eyjafjöllum og lést 4. janúar 1837.
Foreldrar hennar voru Þóroddur Sigurðsson og Þórunn Sveinsdóttir í Gerðakoti.

Margrét var ógift vinnukona í Varmahlíð u. Eyjafjöllum 1801, Hellnakoti þar 1802 við fæðingu tvíburanna, í Efstakoti þar 1816.
Þau Magnús fluttust frá Efstakoti að Tungu í V-Landeyjum 1826.
Þau voru komin að Elínarhúsi 1835 og að Háagarði 1836.
Margrét lést, varð „bráðdauð“, í janúar 1837.

I. Barnsfaðir hennar var Nikulás Brandsson vinnupiltur í Gerðakoti.
1. Börn þeirra tvö voru samvaxnir tvíburar, andvana fæddir 19. september 1802.

II. Maður hennar var Magnús Sigurðsson tómthúsmaður í Elínarhúsi, síðan bóndi og sjómaður í Háagarði, f. 1796, d. 20. ágúst 1863. Margrét var fyrri kona hans.
Þau voru barnlaus.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.