María Friðrika Guðmundsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.

María Friðrika Guðmundsdóttir húsfreyja frá Batavíu fæddist 3. mars 1868 og lést Vestanhafs.
Foreldrar hennar voru Guðmundur Ögmundsson vitavörður og járnsmiður, f. 13. maí 1842, d. 19. nóvember 1914, og fyrri kona hans Sigríður Ólafsdóttir húsfreyja, f. 17. ágúst 1830, d. 1. júlí 1886.

María Friðrika var hjá foreldrum sínum í Brandshúsi 1870, unnusta og bústýra í Helgahjalli 1890.
María Friðrika, Jóhannes maður hennar og Ólafía tveggja ára dóttir þeirra eru meðal útflytjenda frá Helgahjalli 1892.
Jóhannes lést 1895.

María Friðrika var tvígift:
I. Fyrri maður hennar, (4. nóvember 1890), var Jóhannes Jónsson Ögmundssonar tómthúsmaður í Helgahjalli, f. 14. maí 1866 í Presthúsum í Mýrdal, d. 1895 í Spanish Fork í Utah.
Börn Maríu Friðriku og Jóhannesar hér voru:
1. Guðjón, f. 14. mars 1888, d. 21. mars sama ár.
2. Ólafía, fædd 7. júlí 1890.
3. Sonur, f. Vestanhafs.

II. Síðari maður Maríu Friðriku var Björn Magnússon frá Ljótarstöðum í A-Landeyjum, gullleitarmaður og síðan bóndi í Blaine í Washington-fylki í Bandaríkjunum, f. 30. september 1857, d. 6. maí 1935.
Börn þeirra:
4. Björn Jóhannes Björnsson, f. í Bellingham, kvæntur enskri konu.
5. Elín Björnsdóttir, gift enskum manni.
6. Karólína Björnsdóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Árni Árnason.
  • Íslendingabók.is.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.
  • Saga Íslendinga í Vesturheimi I-V. Þorsteinn Þ. Þorsteinsson, Tryggvi J. Oleson. Winnipeg: Þjóðræknisfélag Íslendinga í Vesturheimi: Menningarsjóður 1940-1953.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.
  • Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.
  • Víkingslækjarætt – niðjatal Guðríðar Eyjólfsdóttur og Bjarna Halldórssonar hreppstjóra. Pétur Zophoníasson og fleiri. Skuggsjá 1983.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.