Magnús Sigmundsson (Oddsstöðum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. ágúst 2015 kl. 16:57 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. ágúst 2015 kl. 16:57 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Magnús Sigmundsson vinnumaður, sjómaður á Oddsstöðum, fæddist 1810 á Vestur-Holti u. Eyjafjöllum og drukknaði 18. nóvember 1842.
Foreldrar hans voru Sigmundur Auðunsson bóndi á Harða-Velli u. Eyjafjöllum, f. 25. apríl 1777 í Vestur-Holti, og kona hans Guðlaug Magnúsdóttir húsfreyja, f. 1777 í Gíslakoti þar, d. 18. nóvember 1863.

Magnús var með foreldrum sínum á Harða-Velli 1816 og í Syðri-Kvíhólma þar 1835.
Hann var vinnumaður á Hellnahóli þar 1840.
Magnús var sjómaður á Oddsstöðum 18. nóvember 1842, er hann drukknaði. Vigfús Bergsson bóndi og hreppstjóri í Stakkagerði og Guðmundur Sigurðsson bóndi á Oddsstöðum stóðu fyrir flutningi sauðfjár í Elliðaey í nóvember 1842, er juli, sem þeir voru með, hvolfdi. Þar drukknuðu 6 menn. (Sjá nánar: Blik 1958/Traustir ættliðir, fyrri hluti ).
Þeir, sem drukknuðu, voru:
1. Vigfús Bergsson bóndi og hreppstjóri í Stakkagerði, 31 árs.
2. Guðmundur Sigurðsson bóndi á Oddsstöðum, 42 ára.
3. Brandur Eiríksson tómthúsmaður frá Hóli, 45 ára.
4. Einar Einarsson tómthúsmaður frá Kastala, 30 ára.
5. Magnús Sigmundsson.
6. Sæmundur Runólfsson vinnumaður á Gjábakka, 22 ára.

I. Barnsmóðir hans var Helga Jónsdóttir vinnukona, síðar húsfreyja á Kvíhólma og Ystabæliskoti u. Eyjafjöllum, f. 1815, d. 21. september 1887.
1. Barn þeirra var Jakob Magnússon vinnumaður í Dölum, f. 1839, hrapaði til bana 1. ágúst 1855.

II. Barnsmóðir Magnúsar var Halldóra Jónsdóttir vinnukona, síðar húsfreyja í Berjaneskoti u. Eyjafjöllum, f. 16. september 1814 í Hátúnum í Landbroti, d. 7. október 1867.
Barn þeirra var
2. Guðrún Magnúsdóttir húsfreyja á Löndum, f. 5. júlí 1840, d. 18. maí 1930 í Utah.

III. Barnsmóðir Magnúsar var Guðrún Jónsdóttir vinnukona á Vilborgarstöðum, f. 1805, d. 1. júlí 1864. Hún varð síðari kona Eiríks Eiríkssonar á Vilborgarstöðum.
Barn þeirra var
3. Guðrún Magnúsdóttir, f. 14. júní 1843 á Vilborgarstöðum, d. 27. júní 1843 úr ginklofa.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Blik 1958.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.