Magnús Karl Guðmundsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 23. september 2019 kl. 18:13 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 23. september 2019 kl. 18:13 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Karl Guðmundsson

Magnús Karl Guðmundsson, Reykholti, fæddist í Reykjavík 4. maí 1903 og lést 10. maí 1993. Karl fór ungur til Eyja með foreldrum sínum, Guðmundi Magnússyni f. 5.09.1877 - d. 21.09.1959 trésmíðameistara og Helgu Jónsdóttur f. 19.01.1874 - d. 19.10.1947.

Sjómennsku hóf Karl á unga aldri og formennsku hóf hann á Skúla fógeta. Síðar var hann meðal annars með Tjald og Óðinn.

Karl var giftur Unni Jónsdóttur og áttu þau þrjá syni. Þeir voru:
1. Jón Karlsson - f. 12.08.1934, d. 12.05.2003.
2. Guðmundur Karlsson - f. 9.06.1936.
3. Ellert Karlsson - f. 05.12.1944.


Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.
  • Islendingabok.is
  • Manntal