Magnús Helgason (Hamri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 10. nóvember 2017 kl. 20:04 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 10. nóvember 2017 kl. 20:04 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Magnús Helgason sjómaður, vélstjóri frá Hamri fæddist 5. júlí 1917 á Túnsbergi og lést 3. janúar 1992.
Foreldrar hans voru Helgi Hjálmarsson sjómaður, trésmiður á Hamri, síðar bóndi í Rotum u. Eyjafjöllum, en síðast í Reykjavík, f. 13. október 1880, d. 6. apríl 1976, og fyrri kona hans Guðbjörg Vigdís Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 12. desember 1889, d. 25. ágúst 1924.

Börn Helga og Guðbjargar voru:
1. Hermann Helgason vélstjóri, f. 30. janúar 1916 á Löndum, d. 5. júlí 2006. Kona hans var Sigurlaug Guðmundsdóttir.
2. Magnús Helgason, f. 5. júlí 1917 á Túnsbergi, síðast í Reykjavík, d. 3. janúar 1992.
3. Hjálmar Kristinn Helgason sjómaður í Reykjavík, f. 16. júní 1920 í Fagurhól, d. 22. nóvember 1993. Kona hans var Elín Katrín Sumarliðadóttir.
3. Gunnar Ágúst Helgason á Lögbergi, sjómaður, vélstjóri, forstöðumaður, f. 22. janúar 1923 á Hamri, d. 23. nóvember 2000. Kona hans var Ingibjörg Lovísa Guðjónsdóttir.
4. Guðbjörg Helgadóttir Beck húsfreyja á Seltjarnarnesi, f. 18. ágúst 1924 á Hamri, d. 28. maí 2013. Maður hennar var Páll Beck.

Börn Helga og Sigríðar síðari konu hans og hálfsystkini Ágústs:
5. Sigurður Helgi Helgason verkamaður í Reykjavík, f. 3. apríl 1926, d. 17. maí 1991, ókvæntur.
6. Hlöðver Helgason í Eyjum, verkamaður, sjómaður, skipstjóri, útgerðarmaður, síðar í Reykjavík, f. 11. september 1927 á Hamri, d. 2. ágúst 2007. Kona hans var Katrín Sólveig Jónsdóttir.
7. Gústaf Helgason verkamaður í Reykjavík, f. 21. ágúst 1928, d. 21. febrúar 2010, ókvæntur.
8. Hugó Helgason, f. 31. mars 1930. Hann fluttist til Svíþjóðar, ókvæntur.
9. Laufey Helgadóttir húsfreyja í Noregi, f. 28. maí 1932. Maður hennar er Kåre Gravdehaug.
10. Unnur Sigrún Helgadóttir húsfreyja í Noregi, f. 21. ágúst 1933. Maður hennar er Kjeld Gundersen.
11. Sigrún Helgadóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 11. júlí 1937, d. 18. júní 1987. Hún var gift Sæmundi Inga Sveinssyni bifreiðastjóra.

Magnús var með foreldrum sínum meðan beggja naut við, en móðir hans lést, er hann var 7 ára.
Hann var á Hamri 1925 með föður sínum, Sigríði stjúpu sinni og systkinum sínum nema Guðbjörgu, en hún var í fóstri á Akri.
Magnús fór í fóstur 7 ára að Sauðhúsvelli u. Eyjafjöllum og ári síðar að Stóru-Mörk. Þar ólst hann upp næstu árin hjá Jóhönnu Ketilsdóttur og Guðjóni Ólafssyni.
Hann fór á vertíð í Eyjum, er hann var 16 ára, var þar í 20 ár, var vélstjóri og bjó á Staðarfelli 1940.
Magnús stundaði sjómennsku til 1952, en vann síðan í rösk 30 ár hjá fiskimjölsverksmiðjunni Kletti í Reykjavík.
Þau Sólveig giftu sig 1947, eignuðust þrjár dætur, misstu eina þeirra á öðru aldursári.

I. Kona Magnúsar, (1947), var Sólveig Þorleifsdóttir frá Selárdal í Hörðudal í Dalasýslu, síðar í Breiðholti í Reykjavík, saumakona, síðar húsfreyja í Reykjavík, f. 14. nóvember 1912, d. 20. apríl 1989. Foreldrar hennar voru Þorleifur Jónsson bóndi víða á Vesturlandi, Dalasýslu, Hnappadalssýslu, Mýrasýslu, síðast í Breiðholti í Reykjavík, f. 20. apríl 1874, d. 19. október 1954, og kona hans Jóhanna Sigríður Ólafsdóttir húsfreyja, f. 25. október 1878, d. 9. febrúar 1979.
Börn þeirra:
1. Jóhanna Kolbrún Magnúsdóttir, f. 30. september 1948, d. 18. apríl 1950.
2. Guðbjörg Helga Magnúsdóttir ferðafræðingur hjá Iceland Air, f. 18. febrúar 1950. Maður hennar er Björn Ólafsson verkfræðingur.
3. Jóhanna Sigríður Magnúsdóttir húsfreyja, stuðnings-og meðferðarfulltrúi, f. 6. júní 1952. Maður hennar er Páll Pálsson sölustjóri.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Afkomendur.
  • Borgfirzkar æviskrár. Margir höfundar. Sögufélag Borgarfjarðar 1969-2007.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Morgunblaðið 12. janúar 1993. Minning.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.