Magnús Guðjónsson (Reykjum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 30. janúar 2023 kl. 16:28 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 30. janúar 2023 kl. 16:28 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Magnús Guðjónsson.

Magnús Guðjónsson frá Reykjum, bifreiðastjóri fæddist þar 24. janúar 1929 og lést 23. janúar 2023 í Hraunbúðum.
Foreldrar hans voru Guðjón Jónsson skipstjóri, verkamaður, slátrari, f. 10. febrúar 1892 á Selalæk á Rangárvöllum, d. 14. maí 1967, og kona hans Bergþóra Jónsdóttir húsfreyja, f. 10. október 1894 í Bakkakoti u. Eyjafjöllum, d. 20. desember 1989.
Börn Bergþóru og Guðjóns:
1. Jón Óskar Guðjónsson, f. 26. júní 1917 í Steinum u. Eyjafjöllum, d. 25. apríl 1940 ú berklum.
2. Guðmundur Guðjónsson rekstrarstjóri í Kópavogi, f. 9. febrúar 1920, d. 5. ágúst 2008. Kona hans Ása Gissurardóttir.
3. Þórhallur Ármann Guðjónsson, f. 8. febrúar 1921 á Eystri-Gjábakka, d. 14. maí 1921.
4. Jóhanna Guðjónsdóttir húsfreyja, sjúkraliði, f. 5. júní 1922 í Ásbyrgi, d. 26. júní 2017.
5. Guðbjörn Guðjónsson vélvirkjameistari, verksmiðjustjóri, f. 14. apríl 1924 í Ásbyrgi, d. 24. apríl 2012.
6. Þorleifur Guðjónsson vélstjóri, skipstjóri, útgerðarmaður, f. 23. júní 1926 á Reykjum, d. 24. nóvember 1974.
7. Magnús Guðjónsson bifreiðastjóri, f. 24. janúar 1929 á Reykjum.
8. Þórhallur Ármann Guðjónsson verkstjóri, f. 27. október 1931 á Reykjum.
9. Lilja Guðjónsdóttir, f. 10. apríl 1933 á Reykjum, d. 3. janúar 1941.
10. Haukur Guðjónsson bifreiðastjóri, f. 13. mars 1938 á Reykjum.

Magnús var með foreldrum sínum í æsku.
Hann varð sendibifreiðastjóri hjá Bæjarbúðinni 1947, síðan bifreiðastjóri á Bifreiðastöð Vestmannaeyja í 44 ár.
Magnús var stjórnarformaður stöðvarinnar í 28 ár og stóð að riti um sögu hennar.
Síðustu tíu ár starfsævi sinnar var Magnús landmaður hjá útgerð m.b. Gjafars í Eyjum. Þar vann hann til 75 ára aldurs.
Þau Edith giftu sig 1954, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu í fyrstu á Reykjum, en byggðu hús við Illugagötu 5 og bjuggu þar frá 1959.
Sif Edith lést 2018 og Magnús 2023.

I. Kona Magnúsar, (24. desember 1954), var Sif Edith Skorpel Jóhannesdóttir, f. Skorpel, frá Garstedt í Pinneberg í Þýskalandi, f. 7. júlí 1934, d. 3. apríl 2018. Foreldrar hennar voru Johannes Skorpel bakari, f. 14. maí 1893, d. 24. febrúar 1973 og Alice Skorpel húsfreyja, f. 31. október 1903, d. 12. nóvember 1987.
Börn þeirra:
1. Jón Grétar Magnússon skrifstofumaður hjá Tryggingastofnun Ríkisins, f. 28. júní 1955. Kona hans Guðrún Ingibjörg Gylfadóttir.
2. Jóhanna Elísa Magnúsdóttir húsfreyja, leikskólakennari, f. 2. maí 1961. Maður hennar Karl Logason.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.