Magnea Jónsdóttir (Háagarði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. október 2015 kl. 19:57 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. október 2015 kl. 19:57 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.
Solveig Magnea Jónsdóttir.

Solveig Magnea Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur frá Háagarði fæddist 1. nóvember 1904 í Holti í Álftaveri og lést 10. desember 1984.
Foreldrar hennar voru Jón Sverrisson bóndi, yfirfiskimatsmaður, f. 22. janúar 1871, d. 5. mars 1968, og kona hans Solveig Jónína Magnúsdóttir húsfreyja, f. 20. ágúst 1879, d. 21. apríl 1955.

Börn Jón Sverrissonar og Solveigar Jónínu voru:
1. Sigurður Jónsson verslunarmaður, f. 24. júlí 1898, d. 22. apríl 1962.
2. Sverrir Magnús Jónsson sjómaður, f. 25. júní 1900, drukknaði af Minervu 24. janúar 1927.
3. Elías Theodór Jónsson framkvæmdastjóri, f. 11. júní 1901, d. 28. júlí 1959.
4. Einar Jónsson skipstjóri, f. 16. desmber 1902, drukknaði af Mínervu 24. janúar 1927.
5. Solveig Magnea Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur, f. 1. nóvember 1904, d. 10. desember 1984.
6. Sigurjón Jónsson skipstjóri, síðar verkamaður, f. 18. janúar 1906, d. 5. október 1979.
7. Lilja Jónsdóttir hárgreiðslukona, f. 5. maí 1907, d. 28. desember 2006.
8. Ingibjörg Jónsdóttir húsfreyja, f. 18. september 1908, d. 24. apríl 1993.
9. Aðalheiður Svanhvít Jónsdóttir húsfreyja, f. 3. janúar 1910, d. 26. október 1946.
10. Böðvar Jónsson verksmiðjustjóri, f. 8. desember 1911, d. 18. febrúar 1997.
11. Kjartan Jónsson lyfjafræðingur, f. 1. maí 1914, d. 5. júní 2004.
12. Svanhildur Jónsdóttir húsfreyja, f. 5. október 1915, d. 11. mars 2006.
13. Rannveig Jónsdóttir húsfreyja, f. 5. október 1915, d. 23. apríl 2002.
14. Karl Jónsson rakari, kaupmaður, lögreglumaður, gangavörður, f. 11. desember 1919 í Eyjum, d. 1. maí 2011.
15. Matthildur Jónsdóttir húsfreyja, f. 6. október 1921 í Eyjum, d. 20. febrúar 2002.

Magnea var foreldrum sínum í Holti til 1919.
Hún fluttist til Eyja 1919 með foreldrum sínum og systkinum, var með þeim í Háagarði og Dölum.
Hún lærði hjúkrun og lauk prófi frá Hjúkrunarskóla Íslands 1935, stundaði framhaldsnám við Ullevål-sjúkrahúsið í Osló.
Hún starfaði á Kleppsspítala, við Sjúkrahús Vestmannaeyja, í Noregi, á Vífilstöðum, á Kristneshæli, Sjúkrahúsinu Hvítabandið, Slysavarðstofunni, var forstöðukona Sjúkrahúss Sólheima í Reykjavík 1959-1969, á Borgarspítalanum 1970, við Heilsuhæli Nátúrulækningafélagsins í Hveragerði 1971, Borgarspítalanum í nokkra mánuði 1973.
Hún var ógift og barnlaus.
Magnea lést 1984.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Hjúkrunarkvennatal. Hjúkrunarfélag Íslands 1992.
  • Íslendingabók.
  • Manntöl.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.