Magnea Guðrún Magnúsdóttir (Felli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 15. desember 2018 kl. 20:21 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 15. desember 2018 kl. 20:21 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Magnea Guðrún Magnúsdóttir (Felli)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Magnea Guðrún Magnúsdóttir frá Felli, húsfreyja fæddist 28. desember 1942 í Sandprýði.
Foreldrar hennar voru Magnús Grímsson skipstjóri frá Felli, f. 10. september 1921, d. 16. desember 2008, og kona hans Aðalbjörg Þorkelsdóttir frá Sandprýði, húsfreyja, f. 5. mars 1924, d. 16. september 2010.

Börn Aðalbjargar og Magnúsar:
1. Magnea Guðrún Magnúsdóttir, f. 28. desember 1942 í Sandprýði. Maður hennar er Hannes Haraldsson.
2. Grímur Magnússon, f. 19. apríl 1945 í Sandprýði. Kona hans er María Ármannsdóttir.
3. Helga Magnúsdóttir, f. 18. apríl 1948 á Felli. Maður hennar er Jón Ragnar Sævarsson.
4. Hafdís Magnúsdóttir, f. 18. janúar 1958. Maður hennar er Jón Ólafur Svansson.

Magnea var með foreldrum sínum í æsku, vann síðan ýmis störf.
Þau Hannes giftu sig 1965, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu á heimili foreldra sinna við giftingu, á Kirkjubæjarbraut 7 1966, síðan á Bakkastíg 6 fram að Gosi 1973. Eftir Gos bjuggu þau á Sóleyjargötu 7, en búa nú að Stóragerði 10.

I. Maður Magneu Guðrúnar, (23. október 1965), er Hannes Haraldsson skipstjóri, útgerðarmaður, trillukarl frá Fagurlyst, f. 4. október 1938 í Garðinum.
Börn þeirra:
1. Hafdís Hannesdóttir húsfreyja, skrifstofumaður hjá Vinnslustöðinni, f. 16. júlí 1966. Maður hennar er Jóhann Þór Jóhannsson og Guðlaugar Pétursdóttur frá Kirkjubæ.
2. Haraldur Hannesson rafvirki, stýrimaður, útgerðarmaður, eigandi og rekur trilluna Víkurröst ásamt Hannesi föður sínum, f. 2. október 1968. Kona hans er Anna Ólafsdóttir og Svövu Hafsteinsdóttur.
3. Hafþór Hannesson sölustjóri hjá Pennanum í Reykjavík, f. 29. júní 1972. Kona hans er Þorbjörg Hanna Ögmundsdóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Haraldur Hannesson.
  • Íslendingabók.is.
  • Prestþjónustubækur.
  • Skipstjóra- og stýrimannatal. Guðmundur Jakobsson. Ægisútgáfan 1979.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.