Magnús Tómasson (Hrafnabjörgum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.
Mangi krummó.

Fullu nafni hét hann Jón Magnús Tómasson, var fæddur 10. sept. 1896 í Frydendal) og lést 1. mars 1977. Magnús var kunnur trillusjómaður í Eyjum, formaður og fisksali.
Magnúsi var komið í fóstur þriggja vikna gömlum til hjónanna í Norður-Gerði, Jóns Jónssonar og Guðbjargar Björnsdóttur. Hjá þeim var hann til fullorðinsára.

Magnús bjó að Hrafnabjörgum við Hásteinsveg og fékk viðurnefni sem dregið er af húsnafninu, Mangi krumm og stundum Mangi Krummó.
Foreldrar hans voru Tómas Ólafsson kenndur við Nýborg, f. 1869 og barnsmóðir hans Magnúsína Magnúsdóttir, f. 1867.
Kona: Kristín Björg Jónsdóttir húsfreyja, f. á Vattarnesi við Reyðarfjörð 23. desember 1898, d. í Eyjum 17. september 1935. Kristín Björg lézt skömmu eftir fæðingu síðasta barns síns.
Börn þeirra hjóna voru:
Jóna Karólína Magnúsdóttir, f. 10. júní 1922.
Jón Guðbjörn Magnússon, f. 9. ágúst 1923.
Jón Berg Halldórsson, f. 1. júlí 1935.

Óskar Kárason samdi formannavísu um Magnús:

Maggi þéttur flóðs í fang
færir trillu greiða,
strangan þegar straumavang
stefnir einn til veiða.



Heimildir