Magnús Tómasson (Hrafnabjörgum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. ágúst 2015 kl. 20:16 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. ágúst 2015 kl. 20:16 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Mangi krummó.

Fullu nafni hét hann Jón Magnús Tómasson, var fæddur 10. sept. 1896 og lést 1. mars 1977. Magnús var kunnur trillusjómaður í Eyjum, formaður og fisksali.
Magnúsi var komið í fóstur þriggja vikna gömlum til hjónanna í Norður-Gerði, Jóns Jónssonar og Guðbjargar Björnsdóttur. Hjá þeim var hann til fullorðinsára.

Magnús bjó að Hrafnabjörgum við Hásteinsveg og fékk viðurnefni sem dregið er af húsnafninu, Mangi krumm og stundum Mangi Krummó.
Foreldrar hans voru Tómas Ólafsson kenndur við Nýborg, f. 1869 og barnsmóðir hans Magnúsína Magnúsdóttir, f. 1867.
I. Kona Magnúsar, (4. júní 1921), var Kristín Björg Jónsdóttir húsfreyja, f. á Vattarnesi við Reyðarfjörð 23. desember 1898, d. í Eyjum 17. september 1935. Kristín Björg lézt skömmu eftir fæðingu síðasta barns síns.
Börn þeirra hjóna voru:
1. Jóna Karólína húsfreyja, f. 10. júní 1922, d. 30. janúar 2009.
2. Jón Guðbjörn skrifstofumaður, f. 9. ágúst 1923, d. 31. janúar 1967.
3. Jón Berg Halldórsson skipstjóri, f. 1. júlí 1935.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.