Magnús Oddsson (Kirkjubæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 7. desember 2014 kl. 12:12 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 7. desember 2014 kl. 12:12 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Viglundur færði Magnús Oddsson á Magnús Oddsson (Kirkjubæ))
Fara í flakk Fara í leit

Magnús Oddsson á Kirkjubæ fæddist 24. október 1822, drukknaði í apríl 1867.

Foreldrar hans voru Oddur Ögmundsson, f. um 1787 og k.h. Ingveldur Magnúsdóttir, f. 1796.

Magnús var skráður sjómaður á Kirkjubæ 1845, hafnsögumaður og bóndi var hann. Hann var skipherra á þilskipinu Helgu, sem fórst með allri áhöfn, 6 manns, í apríl 1867. Skipherrar voru þeir kallaðir, sem voru formenn á þilskipum.

Maki I, (21. jan. 1842): Guðrún Höskuldsdóttir, f. 27. apríl 1801, d. 9. september 1860.

Maki II, (8. okt. 1861): Margrét Magnúsdóttir, f. 9. maí 1831, 19. júlí 1900.

1. Andvana sveinbarn, f. 28. des. 1864.
2. Magnúsína, f. 29. ágúst 1867, d. 6. ágúst 1953.


Heimildir