Magnús Jónsson (Háagarði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.

Magnús Jónsson bóndi í Ystabæliskoti u. Eyjafjöllum, síðar í dvöl Háagarði, fæddist 1765 og lést 6. júlí 1835.
Hann var bóndi í Ystabæliskoti 1794, var kominn til Eyja 1804, var í Háagarði hjá Björgu Brynjólfsdóttur tengdadóttur sinni 1835.

Kona Magnúsar var Sesselja Árnadóttir húsfreyja, f. 1769, d. 7. febrúar 1841.
Börn þeirra hér:
1. Sigurður Magnússon bóndi í Háagarði, f. 1794, d. 10. febrúar 1833, kvæntur Björgu Brynjólfsdóttur.
2. Ingveldur Magnúsdóttir húsfreyja á Kirkjubæ, f. 2. janúsr 1796, d. 13. október 1868, kona Odds Ögmundssonar.
3. Árni Magnússon, d. 6. febrúar 1805.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.