Magnús B. Jónsson (rektor)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 4. september 2019 kl. 13:57 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 4. september 2019 kl. 13:57 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Magnús Birgir Jónsson''' frá Stóra-Gerði, skólastjóri Bændaskólans á Hvanneyri fæddist 24. ágúst 1942 í Hábæ.<br> Foreldrar hans voru...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Magnús Birgir Jónsson frá Stóra-Gerði, skólastjóri Bændaskólans á Hvanneyri fæddist 24. ágúst 1942 í Hábæ.
Foreldrar hans voru Jón Magnússon frá Brekkum á Rangárvöllum, bústjóri, bóndi, f. 22. október 1911, d. 10. janúar 1982, og kona hans Ingibjörg Magnúsdóttir frá Dyrhólum í Mýrdal, húsfreyja, f. 17. desember 1909, d. 5. nóvember 1978.

Barn Jóns:
1. Þóra Kristín Jónsdóttir, síðar bóndi á Mel í Þykkvabæ, f. 26. maí 1937. Hún býr í Reykjavík.

Börn Ingibjargar og Jóns:
2. Magnús Birgir Jónsson skólastjóri á Hvanneyri, f. 24. ágúst 1942.
3. Sigurborg Erna Jónsdóttir húsfreyja, kennari, f. 18. nóvember 1943 í Hábæ.
4. Inga Jóna Jónsdóttir húsfreyja, læknafulltrúi, f. 5. maí 1950 í Gerði.

Magnús var með foreldrum sínum í æsku. Hann lauk skyldunámi í Gagnfræðaskólanum, sat í landsprófsdeild, en lauk ekki prófi vegna veikinda.
Magnús lauk búfræðinámi í Bændaskólanum á Hvanneyri 1960, varð búfræðikandídat þar 1963. Hann stundaði framhaldsnám í búfjárrækt við Búnaðarháskólann í Ási í Noregi 1964-1968, lauk licentiatprófi þar snemma árs 1969 (dr. scient), átti námsdvöl í erfða- og kynbótafræðum í Skotlandi 1980.
Magnús var ráðunautur hjá Búnaðarsambandi Suðurlands 1963-1964 og 1970-1972, sérfræðingur hjá norska minkaræktarsambandinu1968-1970.
Hann var skólastjóri Bændaskólans á Hvanneyri 1972-1984 og kennari frá 1984.
Magnús sat í Búfræðslunefnd, sat í stjórn Íslandsdeildar norrænu landbúnaðarsamtakanna, var formaður um skeið.

Ritverk:
1. Variasjonsårsaker í melkavdråtten hos islandske kyr, licentiatritgerð, 1968.
2. Variasjonsårsaker for noenproduksjonsgenskaper hos mink, 1971.
3. Kynbótaskipulag fyrir íslenska kúastofninn (með Jóni V. Jónmundssyni), 1974.
4. Greinar í íslenskum og og norskum tímaritum og erindi á ráðuneytafundum.
5. Kennslubók í loðdýrarækt.

Þau Steinunn Sigríður giftu sig 1964, eignuðust tvö börn, búa á Hvanneyri.

I. Kona Magnúsar Birgis, (7. júní 1964), er Steinunn Sigríður Ingólfsdóttir húsfreyja, féhirðir, f. 29. desember 1944. Foreldrar hennar voru Ingólfur Sigurðsson frá Móum á Skagaströnd, vélstjóri, bifreiðastjóri á Akranesi, f. 23. maí 1913, d. 28. september 1979, og kona hans Soffía Jónfríður Guðmundsdóttir frá Þingeyri við Dýrafjörð, húsfreyja, f. 3. júní 1916, d. 25. janúar 2004.
II. Börn þeirra:
1. Soffía Ósk Magnúsdóttir Dayal með doktorspróf í efnafræði, efnafræðingur, húsfreyja á Indlandi, f. 31. mars 1964. Fyrri maður hennar var Einar Örn Sveinbjörnsson. Síðari maður Soffíu er Dhruv Dayal.
2. Jón Magnússon matreiðslumaður, f. 29. desember 1969. Kona hans er Eleanor Magnússon.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Blik 1959
  • Íslendingabók.is.
  • Kennaratal á Íslandi. Ólafur Þ. Kristjánsson og fleiri. Prentsmiðjan Oddi 1958-1988.
  • Morgunblaðið 3. febrúar 2004. Minning Soffíu Jónfríðar.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.