Magnús Árnason (Lágafelli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Magnús Árnason á Lágafelli við Vestmannabraut 10, sjómaður, umboðsmaður fæddist 22. apríl 1885 í Görðum í Mýrdal og lést 18. apríl 1956.
Foreldrar hans voru Árni Högnason bóndi, f. 2. janúar 1857 á Leirum u. Eyjafjöllum, d. 4. apríl 1938, og kona hans Ragnheiður Magnúsdóttir frá Brennu u. Eyjafjöllum, f. þar 4. janúar 1857, d. 30. mars 1923 í Görðum.

Magnús var með foreldrum sínum til 1904, var vinnumaður í Suður-Vík í Mýrdal 1904-1906, var hjá foreldrum sínum í Görðum 1906-1908, fór þá til Eyja.
Hann var sjómaður á Lágafelli 1910, var síðar umboðsmaður tryggingafélags.
Þau Ingigerður giftu sig 1907, eignuðust fimm börn, en misstu fyrsta barnið tveggja ára. Þau bjuggu á Lágafelli.
Ingigerður lést 1949 og Magnús 1956.

I. Kona Magnúsar, (1907), var Ingigerður Bjarnadóttir húsfreyja, f. 23. nóvember 1873 í Útskálasókn í Gull., d. 25. október 1949.
Börn þeirra:
1. Hanna Ragnheiður Magnúsdóttir, f. 2. desember 1908, d. 25. desember 1910.
2. Ottó Svan Magnússon sjómaður, vélstjóri, f. 3. desember 1911, d. 3. mars 1951.
3. Árni Ragnar Magnússon prentari, f. 17. maí 1914, d. 17. ágúst 1976.
4. Bjarni Gunnar Magnússon bankaritari, f. 26. október 1917, d. 2. október 1984.
5. Högni Magnússon, f. 18. júní 1921, d. 10. október 1994. Kona hans Kristín Magnúsdóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.