Lönd-vestri

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 19. mars 2013 kl. 15:38 eftir Víglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 19. mars 2013 kl. 15:38 eftir Víglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir önnur hús sem hafa borið nafnið „Lönd


Stóru-Lönd húsið til hægri. Hraungerði til vinstri.
Sömu hús séð frá norðri
Stóru-Lönd
Tómthúsið Vestri-Lönd

Húsið Lönd-vestri stóð við Landagötu 11 var byggt árið 1909 af Friðriki Svipmundssyni. Einnig nefnt Stóru-Lönd. Friðrik, sem var mikill aflamaður og sjósóknari, var kvæntur Elínu Þorsteinsdóttur og voru bæði ættuð úr Mýrdalnum. Mikil reisn og myndarskapur þótti einkenna heimilið að Löndum. Húsið fór undir hraun 1973. Árið 1953 bjuggu í húsinu Guðmundur Steinsson og kona hans Sigríður Jónatansdóttir og dóttir þeirra Guðfinna Jónatans Guðmundsdóttir, einnig eru þar skráðar Jórunn Sigurðardóttir, Elín Þorsteinsdóttir og Guðfinna Þórðardóttir.

Þegar gaus bjuggu þar hjónin Einar Indriðason og Fjóla Guðmannsdóttir og börn þeirra Stefán, Jón, Einar Fjölnir, Davíð Þór og Indriði Helgi. Þar bjó einnig ekkillinn Guðmundur S. Ágústsson og synir hans Geir, Guðmundur og Gústaf. Hjónin Rúnar Eiríkur Siggeirsson og Valgerður Sigurðardóttir bjuggu einnig í þessu stóra húsi með dóttur sín Unni.


Heimildir

  • Íbúaskrá 1. desember 1972.

  • Guðjón Ármann Eyjólfsson. Vestmannaeyjar - byggð og eldgos. Reykjavík: Ísafoldaprentsmiðja, 1973.}}
  • Verkefni Húsin undir hrauninu 2012.