„Lundi“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
mEkkert breytingarágrip
Lína 1: Lína 1:
Miðbær við Faxastíg. Mynd: Daníel Steingrímsson== Lýsing ==
[[Mynd:Lundi.jpg|thumb|300px|left|Lundi]]
{{Fuglar}}
'''Lundi''' (l. ''Fratercula arctica'') er í senn þjóðarfugl Vestmannaeyinga og sameiningartákn Eyjamanna. Lundinn kemur til Vestmannaeyja yfir sumarmánuði ársins, og myndar hér eina mestu lundabyggð í heimi, en meira en fjórar milljónir lunda verpa í Vestmannaeyjum.
 
== Lýsing ==
Lundinn er þekktur á sínu fjölskrúðuga klumbunefi, sem er rákótt með rauðu, bláum og gulum lit. Fuglinn er svartur á bakinu en með hvíta bringu og er grár umhverfis augun. Nokkur afbrigði eru frá þessum litum í náttúrunni, og ber þá að nefna afbrigði sem kallaðir eru konungur, prins, drottning og sótari.

== Lifnaðarhættir ==
Lundi er algengastur fugla á Íslandi og telur um 10 milljónir. Talið er að í Vestmannaeyjum séu um 4 milljónir lunda. Einkennilegt útlit hans og skrautlegt nef gerir hann auðþekktan frá öllum öðrum íslenskum fuglum.  Göngin geta verið allt að 1,5 m. inn í grösugar brekkur upp af björgum . Um miðjan apríl fara fyrsu lundarnir að sjást við Eyjar en í byrjun maí „taka þeir heima“ fyrir alvöru. Eru það einkum kynþroska fuglar sem fyrstir koma. Frá því að þeir yfirgáfu „byggðina“ síðast, eru liðnir sjö mánuðir. Allan þann tíma hefur fuglinn haldið sig á hafi úti langt fyrir sunnan og suðaustan land. Yngri fuglinn þvælist víða og er m.a. uppi undir ströndum Nýfundnalands.
=== Mökunarhættir ===
[[Mynd:Lundar.jpg|thumb|350px|left|Tveir lundar - Mynd: Kristján Egilsson]]Lundi er einkvænisfugl og heldur tryggð við maka sinn og „heimabyggð“ ævilangt, þau endurnýja „hjúskap sinn“ hvert vor, þegar þau hittast við hreiðurholuna sem þau grafa með nefi og löppum. Karlinn kemur í holu sína aftur um viku á undan konunni, til þess að undirbúa komu hennar. Ef að konan hefur ekki komið aftur innan ákveðins tíma, þá tekur hann sér nýjan maka. Afturámóti, ef að hin fyrri „eiginkona“ kemur aftur, þá er nýju konunni „sparkað“. Þessi tryggð virðist einstök meðal þessarra fugla.
Aðalvarptíminn hefst um 20. maí og stendur fram í fyrstu viku júní. Útungunartíminn er u.þ.b. sex vikur og líða svo sex til sjö vikur frá því að pysjan kemur úr eggi og þar til hún yfirgefur hreiðrið.  Báðir foreldrarnir sjá um uppeldið svo og um að veiða í ungann. Koma þau að jafnaði tíu sinnum á dag með 4 - 20 sandsíli eða fiskseiði í goggnum hverju sinni. Um sama leyti og annir hefjast hjá sílisfuglinum (foreldrunum) um mánaðarmótin júní- júlí, bætist geldfuglinn í hópinn. Þegar vindur er, flýgur geldfuglinn með brúnum bjargsins og niður undir sjó. Getur þetta hringflug varað lengi dags. Lundi með æti flýgur aftur á móti ávallt stystu leið heim í holu til að forðast ræningja, svo sem [[kjói|kjóa]], [[skúmur|skúm]], og [[mávur|máv]].
== Varpsvæði ==
Lundinn verpir helst í graslendi við bjargbrúnir, enda grefur hún sér holur þar.
=== Kort ===
[[Mynd:Sjofuglabyggd.JPG]]
== Tölfræði ==
Meðalhæð Lunda er um 20cm, og þeir vega að meðaltali um 500 grömm. Kynin eru eins að þessu leiti, með litlum sýnilegum mun á karl- og kvendýrum.
Lundar eru illfleygir en eru afar góðir sundmenn, en þeir geta flogið allt að 80 km/klst og kafað niður á 60 metra dýpi. Þeir geta haldið sér í kafi í allt að 40 sekúndum, en eru oft ekki nema í um þrjár sekúndur undir yfirborðinu, og á þeim tíma geta þeir farið alveg niður í um 10 metra dýpi.
Á hverju ári verpa Lundar einungis eitt egg, en eggin eru um 6.3 x 4. 5 cm (á stærð við hænuegg). Eggin eru hvít með brúnleitum yrjum. Lundarnir verða kynþroska um 5 til 6 ára aldurinn, og hefst varp þá. Útungun eggja tekur um 40 daga, en lundapysjurnar yfirgefa hreiðrið í fyrsta sinn um 45 daga gamlar.
Meðallundi lifir í um 25 ár, en elsti lundi sem vitað er um var 35 ára þegar hann var veiddur í lundaháf í Suðurey Vestmannaeyjum 18. júlí 1996. Lundanum var sleppt aftur sama dag. Fuglinn var merktur af Óskari J. Sigurðssyni vitaverði í Stórhöfða sem merkt hefur fleiri lunda enn nokkur annar einstaklingur. Frá 1953 hefur Óskar merkt rúmlega 45.000 lunda.
== Lundaveiði ==
[[Mynd:763px-Puffin hunter in Sudurey.jpg|thumb|Lundaveiðimaður með kippu af lunda]]
Áður fyrr var veiði helst stunduð á spikfeitum ungum, sem voru kallaðar kofur. Þá var veitt þá með járnkrók. Um miðja 18. öld var það lagt niður að mestu, en í stað þess var innleiddir [[veiðitæki|háfar]] frá Færeyjum. Um er að ræða langt prik sem skiptist í V-laga sprota við endann, og net strengt á milli kvistanna. Setið er eða legið við bjargið uns ''uppflog'' verður, þ.e. að aragrúi fugla flýgur stöðugt í hring út yfir sjóinn og svífur á móti vindi yfir klettatoppanna, þá eru lundarnir veiddir hver á fætur öðrum. Lundi á mjög erfitt með að verjast þessa árás vegna þess hve illfleygur hann er - hann á erfitt með að beygja skyndilega.
[[Mynd:Peyji med lunda.jpg|thumb|Ungur piltur að veiða sinn fyrsta lunda]]
Ef að nægilega gott uppflog er geta veiðimenn veitt allt upp í 100 lunda á klukkustund, og jafnvel upp í 600 fugla á dag. 100 fugla búnt er kallað kippa.
=== Atferli veiðimanna ===
Veiðimaður sest venjulega nálægt brún og velur sér stað, þar sem minnst ber á honum og háfnum af því að lundinn er eftirtektarsamur og hræddur við háfinn. Veiðimaðurinn stillir oft nokkrum dauðum lundum í kringum staðinn sem hann er á til þess að hæna fuglinn. Þá rekur hann teina eða tálgaðar spýtur í fuglinn og reynir að láta lundann sitja sem réttastann.
Þá stinga lundaveiðimenn oft rauðri veifu einni eða tveimur háfslengdum fyrir ofan staðinn. Einnig þótti gott að hafa fjörmikinn hund sem var að snuðrast í kringum veiðistaðinn. Þetta allt var gert til þess að hæna lundann, gera hann forvitinn og láta hann nálgast staðinn sem veiðimaðurinn var á. 
===Fuglinn veiddur===
Þegar lundinn flýgur yfir í hæfilegum fjarska, þá veifar veiðimaðurinn háfnum upp undir lundann og eftir honum. Ef veiðimaðurinn nær honum, flækist fuglinn í netinu og veiðmaðurinn dregur háfinn að sér, greiðir fuglinn úr, drepur hann og bregður honum undir belti. Þannig er haldið áfram á meðan veður leyfir.
==== Háfur ====
Háfurinn kom hingað frá Færeyjum og var byrjað að nota hann hér um 1875. Áður hafði verið notast við net, grefil og jafnvel snöru (hjálmaveiðar).
 
==== Grefill ====
Fyrr á tímum var [[lundi]] tekinn með grefli úr holum sínum, sem hann grefur djúpt í jörðu í lundabyggðinni. Grefill er veiðiáhald, skaft með beittum króki á endanum. Fuglinn var svo dreginn út með greflinum. Þetta er líklega elsta veiðiaðferðin og lagðist notkun hans af með tilkomu háfsins um 1875.
 
==== Net ====
Netjaveiðar voru stundaðar frá því um 1850 til 1869, eða þar til farið var að ganga of nærri stofninum að þess konar veiðar voru bannaðar. Ýmsar aðferðir voru til við netjaveiðar ýmist var netið lagt yfir lundabreiðurnar eða slegið upp þar sem fuglinn var veiddur á flugi.
 
==== Snöruveiðar ====
Hjálmaveiðar voru stundaðar þegar greflaveiði lauk á sumrin. Þetta voru nokkurs konar snörur og var fuglinn snaraður.
===Veðrið===
Ekki er unnt að veiða í logni og heldur ekki í miklum stormi, stinningskaldi er besta veiðiveðrið og ekki er verra þótt rigning sé. Enda veiðist lundi oft best í regni og dimmviðri.
Staðarval veiðmannsins byggist að mestu á hvaða vindátt er, því að máli skiptir hvort veiðimaðurinn sjáist eða ekki.
Ýmis [[veiðitæki]] hafa verið notuð til lundaveiða en nú á dögum er háfurinn nær eingöngu notaður.
== Lundapysjur ==
Þegar skyggja fer í ágúst fara fyrstu pysjurnar að yfirgefa holurnar og leita til sjávar, en ljósin í kaupstaðnum freista þeirra og hundruðum saman fljúga þær veikum vængjum á vit ljósanna í kaupstaðnum og þar kemur í ljós að fleirum en mannfólkinu hefur orðið dýrkeypt að látast glepjast af ljósadýrð og glysi borganna, því það sem mætir pysjunni við lendingu eru harðar götur og gangstéttar ellegar dimmir húsagarðar og stundum eru kettir á sveimi í veiðihug. En pysjurnar eiga sér sína bandamenn þarna í þessum malbiksfrumskógi. Hvarvetna um bæinn eru hjálpfúsar hendur barna sem hafa það fyrir stafni að kvöldlagi í ágústmánuði að fara um bæinn með pappakassa og safna þeim pysjum sem villst hafa af réttri leið. Ekki er óalgengt að afrakstur kvöldsins hjá hverjum „veiðimanni“ sé u.þ.b. tíu pysjur og stundum meira. Um nóttina fá pysjurnar svo gistingu í mannheimum en árla morguns eru krakkar enn á fótum því nú á „að sleppa“. Þá er farið með kassana niður í fjöru pysjurnar teknar ein af annarri og þeim sveiflað styrkum höndum hátt á loft, þannig að þær grípa flugið á vit frelsisins úti á sjónum.
== Matreiðsla ==
[[Mynd:Lundi a ponnu.jpg|thumb|350px|Nýr lundi að steikjast á pönnu]]
Þegar að lundi hefur verið veiddur er nauðsyn að matreiða hann til manneldis - þessi ljúfenga villibráð er gjarnan ''reykt'', en einnig er hún oft borin fram ''ný''.
Margir veitingastaðir víða um land bjóða upp á Lunda, þá fyrst og fremst sem forrétt.
*[http://www.simnet.is/maggibraga/Lundinn.htm Uppskriftir af Lunda] á heimasíðu [[Magnús Bragason|Magnúsar Bragasonar]].
*[http://www2.uppskriftir.is/recipe.html?id=ED6FDCB73EC1EB3E00256C60004B1CBC Uppskrift af Reyktum lunda á salatbeði] á Uppskriftir.is.
=== Ferskur lundi ===
Tvær aðferðir við matreiðslu á nýjum lunda eru hve vinsælastar - annarsvegar er það það að sjóða hann í um þrjár klukkustundir og bera fram kaldan, og hinsvegar er það að steikja hann á pönnu.
Ef að hann er soðinn þykir mjög gott að setja maltöl út í soðið. Hann er gjarnan borinn fram með kartöflum og grænum baunum.
=== Reyktur lundi ===
Reyktur lundi er gjarnan borinn fram kaldur í hendi og hnífur notaður til þess að skera — forneskjulegir borðsiðir sem að henta mjög vel á hátíðum á borð við [[Þjóðhátíðin]]a.
{{Heimildir|
*[http://alsey.eyjar.is/safnahus/natturu/lundi.htm Náttúrugripasafnið um lundann]
}}

Útgáfa síðunnar 27. júlí 2005 kl. 09:40

Lundi
Fuglar
Sjófuglar
Vaðfuglar
Mávar, kjóar, þernur
Andfuglar
Spörfuglar
Annað
Útdauðir fuglar

Lundi (l. Fratercula arctica) er í senn þjóðarfugl Vestmannaeyinga og sameiningartákn Eyjamanna. Lundinn kemur til Vestmannaeyja yfir sumarmánuði ársins, og myndar hér eina mestu lundabyggð í heimi, en meira en fjórar milljónir lunda verpa í Vestmannaeyjum.

Lýsing

Lundinn er þekktur á sínu fjölskrúðuga klumbunefi, sem er rákótt með rauðu, bláum og gulum lit. Fuglinn er svartur á bakinu en með hvíta bringu og er grár umhverfis augun. Nokkur afbrigði eru frá þessum litum í náttúrunni, og ber þá að nefna afbrigði sem kallaðir eru konungur, prins, drottning og sótari.

Lifnaðarhættir

Lundi er algengastur fugla á Íslandi og telur um 10 milljónir. Talið er að í Vestmannaeyjum séu um 4 milljónir lunda. Einkennilegt útlit hans og skrautlegt nef gerir hann auðþekktan frá öllum öðrum íslenskum fuglum. Göngin geta verið allt að 1,5 m. inn í grösugar brekkur upp af björgum . Um miðjan apríl fara fyrsu lundarnir að sjást við Eyjar en í byrjun maí „taka þeir heima“ fyrir alvöru. Eru það einkum kynþroska fuglar sem fyrstir koma. Frá því að þeir yfirgáfu „byggðina“ síðast, eru liðnir sjö mánuðir. Allan þann tíma hefur fuglinn haldið sig á hafi úti langt fyrir sunnan og suðaustan land. Yngri fuglinn þvælist víða og er m.a. uppi undir ströndum Nýfundnalands.

Mökunarhættir

Tveir lundar - Mynd: Kristján Egilsson

Lundi er einkvænisfugl og heldur tryggð við maka sinn og „heimabyggð“ ævilangt, þau endurnýja „hjúskap sinn“ hvert vor, þegar þau hittast við hreiðurholuna sem þau grafa með nefi og löppum. Karlinn kemur í holu sína aftur um viku á undan konunni, til þess að undirbúa komu hennar. Ef að konan hefur ekki komið aftur innan ákveðins tíma, þá tekur hann sér nýjan maka. Afturámóti, ef að hin fyrri „eiginkona“ kemur aftur, þá er nýju konunni „sparkað“. Þessi tryggð virðist einstök meðal þessarra fugla.

Aðalvarptíminn hefst um 20. maí og stendur fram í fyrstu viku júní. Útungunartíminn er u.þ.b. sex vikur og líða svo sex til sjö vikur frá því að pysjan kemur úr eggi og þar til hún yfirgefur hreiðrið. Báðir foreldrarnir sjá um uppeldið svo og um að veiða í ungann. Koma þau að jafnaði tíu sinnum á dag með 4 - 20 sandsíli eða fiskseiði í goggnum hverju sinni. Um sama leyti og annir hefjast hjá sílisfuglinum (foreldrunum) um mánaðarmótin júní- júlí, bætist geldfuglinn í hópinn. Þegar vindur er, flýgur geldfuglinn með brúnum bjargsins og niður undir sjó. Getur þetta hringflug varað lengi dags. Lundi með æti flýgur aftur á móti ávallt stystu leið heim í holu til að forðast ræningja, svo sem kjóa, skúm, og máv.

Varpsvæði

Lundinn verpir helst í graslendi við bjargbrúnir, enda grefur hún sér holur þar.

Kort

Tölfræði

Meðalhæð Lunda er um 20cm, og þeir vega að meðaltali um 500 grömm. Kynin eru eins að þessu leiti, með litlum sýnilegum mun á karl- og kvendýrum.

Lundar eru illfleygir en eru afar góðir sundmenn, en þeir geta flogið allt að 80 km/klst og kafað niður á 60 metra dýpi. Þeir geta haldið sér í kafi í allt að 40 sekúndum, en eru oft ekki nema í um þrjár sekúndur undir yfirborðinu, og á þeim tíma geta þeir farið alveg niður í um 10 metra dýpi.

Á hverju ári verpa Lundar einungis eitt egg, en eggin eru um 6.3 x 4. 5 cm (á stærð við hænuegg). Eggin eru hvít með brúnleitum yrjum. Lundarnir verða kynþroska um 5 til 6 ára aldurinn, og hefst varp þá. Útungun eggja tekur um 40 daga, en lundapysjurnar yfirgefa hreiðrið í fyrsta sinn um 45 daga gamlar.

Meðallundi lifir í um 25 ár, en elsti lundi sem vitað er um var 35 ára þegar hann var veiddur í lundaháf í Suðurey Vestmannaeyjum 18. júlí 1996. Lundanum var sleppt aftur sama dag. Fuglinn var merktur af Óskari J. Sigurðssyni vitaverði í Stórhöfða sem merkt hefur fleiri lunda enn nokkur annar einstaklingur. Frá 1953 hefur Óskar merkt rúmlega 45.000 lunda.

Lundaveiði

Lundaveiðimaður með kippu af lunda

Áður fyrr var veiði helst stunduð á spikfeitum ungum, sem voru kallaðar kofur. Þá var veitt þá með járnkrók. Um miðja 18. öld var það lagt niður að mestu, en í stað þess var innleiddir háfar frá Færeyjum. Um er að ræða langt prik sem skiptist í V-laga sprota við endann, og net strengt á milli kvistanna. Setið er eða legið við bjargið uns uppflog verður, þ.e. að aragrúi fugla flýgur stöðugt í hring út yfir sjóinn og svífur á móti vindi yfir klettatoppanna, þá eru lundarnir veiddir hver á fætur öðrum. Lundi á mjög erfitt með að verjast þessa árás vegna þess hve illfleygur hann er - hann á erfitt með að beygja skyndilega.

Ungur piltur að veiða sinn fyrsta lunda

Ef að nægilega gott uppflog er geta veiðimenn veitt allt upp í 100 lunda á klukkustund, og jafnvel upp í 600 fugla á dag. 100 fugla búnt er kallað kippa.

Atferli veiðimanna

Veiðimaður sest venjulega nálægt brún og velur sér stað, þar sem minnst ber á honum og háfnum af því að lundinn er eftirtektarsamur og hræddur við háfinn. Veiðimaðurinn stillir oft nokkrum dauðum lundum í kringum staðinn sem hann er á til þess að hæna fuglinn. Þá rekur hann teina eða tálgaðar spýtur í fuglinn og reynir að láta lundann sitja sem réttastann. Þá stinga lundaveiðimenn oft rauðri veifu einni eða tveimur háfslengdum fyrir ofan staðinn. Einnig þótti gott að hafa fjörmikinn hund sem var að snuðrast í kringum veiðistaðinn. Þetta allt var gert til þess að hæna lundann, gera hann forvitinn og láta hann nálgast staðinn sem veiðimaðurinn var á.

Fuglinn veiddur

Þegar lundinn flýgur yfir í hæfilegum fjarska, þá veifar veiðimaðurinn háfnum upp undir lundann og eftir honum. Ef veiðimaðurinn nær honum, flækist fuglinn í netinu og veiðmaðurinn dregur háfinn að sér, greiðir fuglinn úr, drepur hann og bregður honum undir belti. Þannig er haldið áfram á meðan veður leyfir.

Háfur

Háfurinn kom hingað frá Færeyjum og var byrjað að nota hann hér um 1875. Áður hafði verið notast við net, grefil og jafnvel snöru (hjálmaveiðar).

Grefill

Fyrr á tímum var lundi tekinn með grefli úr holum sínum, sem hann grefur djúpt í jörðu í lundabyggðinni. Grefill er veiðiáhald, skaft með beittum króki á endanum. Fuglinn var svo dreginn út með greflinum. Þetta er líklega elsta veiðiaðferðin og lagðist notkun hans af með tilkomu háfsins um 1875.

Net

Netjaveiðar voru stundaðar frá því um 1850 til 1869, eða þar til farið var að ganga of nærri stofninum að þess konar veiðar voru bannaðar. Ýmsar aðferðir voru til við netjaveiðar ýmist var netið lagt yfir lundabreiðurnar eða slegið upp þar sem fuglinn var veiddur á flugi.

Snöruveiðar

Hjálmaveiðar voru stundaðar þegar greflaveiði lauk á sumrin. Þetta voru nokkurs konar snörur og var fuglinn snaraður.

Veðrið

Ekki er unnt að veiða í logni og heldur ekki í miklum stormi, stinningskaldi er besta veiðiveðrið og ekki er verra þótt rigning sé. Enda veiðist lundi oft best í regni og dimmviðri. Staðarval veiðmannsins byggist að mestu á hvaða vindátt er, því að máli skiptir hvort veiðimaðurinn sjáist eða ekki.

Ýmis veiðitæki hafa verið notuð til lundaveiða en nú á dögum er háfurinn nær eingöngu notaður.

Lundapysjur

Þegar skyggja fer í ágúst fara fyrstu pysjurnar að yfirgefa holurnar og leita til sjávar, en ljósin í kaupstaðnum freista þeirra og hundruðum saman fljúga þær veikum vængjum á vit ljósanna í kaupstaðnum og þar kemur í ljós að fleirum en mannfólkinu hefur orðið dýrkeypt að látast glepjast af ljósadýrð og glysi borganna, því það sem mætir pysjunni við lendingu eru harðar götur og gangstéttar ellegar dimmir húsagarðar og stundum eru kettir á sveimi í veiðihug. En pysjurnar eiga sér sína bandamenn þarna í þessum malbiksfrumskógi. Hvarvetna um bæinn eru hjálpfúsar hendur barna sem hafa það fyrir stafni að kvöldlagi í ágústmánuði að fara um bæinn með pappakassa og safna þeim pysjum sem villst hafa af réttri leið. Ekki er óalgengt að afrakstur kvöldsins hjá hverjum „veiðimanni“ sé u.þ.b. tíu pysjur og stundum meira. Um nóttina fá pysjurnar svo gistingu í mannheimum en árla morguns eru krakkar enn á fótum því nú á „að sleppa“. Þá er farið með kassana niður í fjöru pysjurnar teknar ein af annarri og þeim sveiflað styrkum höndum hátt á loft, þannig að þær grípa flugið á vit frelsisins úti á sjónum.

Matreiðsla

Nýr lundi að steikjast á pönnu

Þegar að lundi hefur verið veiddur er nauðsyn að matreiða hann til manneldis - þessi ljúfenga villibráð er gjarnan reykt, en einnig er hún oft borin fram .

Margir veitingastaðir víða um land bjóða upp á Lunda, þá fyrst og fremst sem forrétt.

Ferskur lundi

Tvær aðferðir við matreiðslu á nýjum lunda eru hve vinsælastar - annarsvegar er það það að sjóða hann í um þrjár klukkustundir og bera fram kaldan, og hinsvegar er það að steikja hann á pönnu.

Ef að hann er soðinn þykir mjög gott að setja maltöl út í soðið. Hann er gjarnan borinn fram með kartöflum og grænum baunum.

Reyktur lundi

Reyktur lundi er gjarnan borinn fram kaldur í hendi og hnífur notaður til þess að skera — forneskjulegir borðsiðir sem að henta mjög vel á hátíðum á borð við Þjóðhátíðina.

Heimildir