Ludvig Bech (Kornhól)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.

Esper Ludvig Hákon Bech verslunarstjóri á Papósi fæddist 28. október 1839 í Kornhól.
Foreldrar hans voru Sören Ludvig Bech verslunarmaður (assistent) í Garðinum, f. 1802 í Kaupmannahöfn, og kona hans Margrete Elenore Elleby Bech, f. 1809.

Ludvig fluttist með foreldrum sínum til Kaupmannahafnar 1843.
Hann var verslunarþjónn í Flensborgarverslun í Hafnarfirði 1860, kom að Papósi 1864 frá Kaupmannahöfn og var verslunarstjóri þar. Verslunin var þá í eigu Jörgens Johnsens ættföður Johnsenættar í Eyjum, en líklega síðan í eigu Jörgens Henriks Nicolai sonar hans.
Ludvig Bech átti barn með Elínu Katrínu 1868, kvæntist henni 1872 og átti 2 börn með henni eftir það, en annað þeirra dó nokkurra daga gamalt.
Þau fluttust með Juliane Bentine og Maríu Elenoru til Kaupmannahafnar 1875, en þá kom Jörgen Henrik Nicolai Johnsen til Papóss.

Bústýra og síðan, (2. janúar 1872), kona Ludvigs Bechs var Elín Katrín, f. 31. desember 1837, Jónsdóttir vinnumanns Eiríkssonar af Ásunnarstaðaætt í Breiðdal.
Börn þeirra fædd á Papósi voru:
1. Juliane Bentine Bech, f. 14. júlí 1868.
2. Sören Ludvig Bech, f. 21. mars 1872, d. 26. mars 1872.
3. María Elenora Bech, f. 29. september 1873.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Ættir Austfirðinga. Einar Jónsson og fleiri. Austfirðingafélagið í Reykjavík 1953-1968.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.