Loftur Guðmundsson (kennari)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 11. mars 2013 kl. 15:37 eftir Gauti (spjall | framlög) Útgáfa frá 11. mars 2013 kl. 15:37 eftir Gauti (spjall | framlög) (Taflfélagið)
Fara í flakk Fara í leit
Loftur

Loftur Guðmundsson fæddist 6. júní 1906 að Þúfukoti í Kjós og lést 29. ágúst 1978. Kona Lofts var Tala Klemenzdóttir úr Mýrdal og áttu þau synina Guðmund Marino, Indriða og Gunnar Heiðar. Loftur dvaldist um 12 ára skeið við kennslustörf í Eyjum, kenndi við Barnaskólann frá 1933 til 1945.

Í Eyjum stundaði hann einnig ritstörf og samdi meðal annars leikritið Brimhljóð sem var eitt af hans þekktari leikritum. Loftur var félagi í Taflfélagi Vestmannaeyja og símstjóri þess um tíma á miklu blómaskeiði félagsins 1936 til 1939. Af bókum eftir Loft má nefna Jónsmessunæturmartröð á fjallinu helga sem kom út 1957 og kvikmyndasöguna Síðasti bærinn í dalnum sem kom út 1950. Auk þess var Loftur afkastamikill þýðandi. Eyjamenn minnast Lofts þó kannski helst fyrir ljóð hans við lög Oddgeirs Kristjánssonar. Hann samdi meðal annars textann við Þjóðhátíðarlagið 1968, Svo björt og skær, og textann við Ship ohoj.

Myndir