„Loftur Ólafsson (vélstjóri)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Loftur Sumarvin Ólafsson''' frá Mölshúsum á Álftanesi, síðar á Ólafsvöllum í Eyjum, vélstjóri 24. apríl 1902 og lést 23. júní 1966.<br> Foreldrar...)
 
m (Verndaði „Loftur Ólafsson (vélstjóri)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 7. nóvember 2019 kl. 10:32

Loftur Sumarvin Ólafsson frá Mölshúsum á Álftanesi, síðar á Ólafsvöllum í Eyjum, vélstjóri 24. apríl 1902 og lést 23. júní 1966.
Foreldrar hans voru Ólafur Stefánsson í Litlabæ og Mölshúsum á Álftanesi, síðar á Ólafsvöllum í Eyjum, f. 13. ágúst 1865 á Hömrum í Grímsnesi, d. 20. apríl 1941, og fyrri kona hans Málfríður Loftsdóttir húsfreyja, f. 1. september 1868 á Álftanesi, d. 19. ágúst 1904.

Börn Ólafs og Málfríðar fyrri konu hans :
1. Ögmundur Ólafsson vélstjóri, útgerðarmaður á Litlalandi, f. 6. júní 1894 í Deildarkoti á Álftanesi, d. 29. september 1995.
2. Margrét Stefanía Ólafsdóttir, f. 24. júlí 1896 í Lambhaga á Álftanesi. Hún var í Reykjavík 1910, fluttist til Haugasunds í Noregi. Maður hennar var Knutsen.
3. Valgerður Ólafsdóttir, f. 1. apríl 1899 í Mölshúsum. Hún var hjá föður sínum 1914, en fór frá Eyjum 1915, kom til Eskifjarðar 1916 og fór til Reykjavíkur 1917, þaðan til Danmerkur og síðan til Bandaríkjanna. Hún bjó í Flórída.
4. Valdimar Angantýr Ólafsson, f. 17. janúar 1901 á Álftanesi, niðursetningur á Snorrastöðum í Laugardal í Grímsnesi 1910, d. 23. ágúst 1911.
5. Loftur Sumarvin Ólafsson vélstjóri í Reykjavík, f. 24. apríl 1902 í Mölshúsum, d. 23. júní 1966. Hann var fósturbarn í Halakoti á Álftanesi 1910, vinnumaður þar 1920.
6. Andvana stúlka, f. 15. ágúst 1904 í Mölshúsum.
Börn Ólafs og Þorbjargar síðari konu hans:
5. Ólafur Unnfriður Ólafsson, tvíburi, f. 19. júlí 1909, d. 30. september 1927.
6. Andvana drengur, tvíburi, f. 19. júlí 1909.

Loftur var fósturbarn í Halakoti á Álftanesi 1910, vinnumaður þar 1920, var í Sigtúni 1922.
Loftur varð vélstjóri í Reykjavík, lengst á togurum, en síðan hjá Áhaldahúsi Reykjavíkurborgar (Vélamiðstöðinni).
Hann eignaðist barn með Guðrúnu 1922 í Sigtúni.
Þau Katrín eignuðust þrjú börn.
Loftur lést 1966 og Katrín 1971.

I. Barnsmóðir Lofts var Guðrún Guðjónsdóttir frá Sigtúni, síðar húsfreyja á Austurvegi 16, f. 10. ágúst 1898 á Ekru á Rangárvöllum, d. 16. ágúst 1983.
Barn þeirra:
1. Elín Loftsdóttir húsfreyja, f. 5. mars 1922, d. 22. janúar 2005.

II. Kona Lofts var Katrín Sigurðardóttir húsfreyja, f. 3. ágúst 1904, d. 16. júlí 1971. Foreldrar hennar voru Sigurður Guðmundsson verkamaður, f. 23. júlí 1881 á Miðhúsum á Vatnsleysuströnd, d. 26. september 1967, og kona hans Guðrún Sigurðardóttir húsfreyja, f. 3. október 1876 í Saurbæ í Ölfusi, d. 23. mars 1958.
Börn þeirra:
2. Gunnar Loftsson yfirflugvirki, f. 13. september 1927, d. 27. september 2004. Kona hans Maggý Elísa Jónsdóttir.
3. Ingi Loftur Loftsson flugvirki, f. 20. júní 1931, d. 19. nóvember 2012. Kona hans Hanna Lára Þorsteinsdóttir.
4. Málfríður Loftsdóttir húsfreyja, kaupmaður í Mondo í Reykjavík, f. 3. júní 1939. Maður hennar Kristján Sigurðsson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.