Litlibær

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.
Litlibær

Húsið Litlibær við Miðstræti 16 var byggt árið 1904 en endurbyggt árið 1960. Var áður skráð við Strandveg 35. Var tómthúsalóð árið 1872. Frá Litlabæ er mikill fjöldi nafntogaðra Eyjamanna kominn. Þeir bræður, Ólafur bátasmiður, Kristinn á Miðhúsum og Valdimar, Ástgeirssynir, voru jafnan kenndir við æskuheimili sitt, Litlabæ. Og synir Ólafs eru einnig sumir landsþekktir, Sigurjón (Siggi í Bæ) kunnur trillusjómaður í Eyjum, Ástgeir (Ási í Bæ) og Kristinn R. Ólafsson, fréttaritari útvarpsins á Spáni.

Árið 2006 bjó Helgi Guðbrandsson í húsinu.


Heimildir

  • Miðstræti. Verkefni unnið af þátttakendum á námskeiðinu Húsin í götunni. Vestmannaeyjar, 2004.