Lilja Þorleifsdóttir (Breiðholti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 15. september 2018 kl. 13:32 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 15. september 2018 kl. 13:32 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: thumb|100px|''Lilja Þorleifsdóttir. thumb|100px|''Lilja og Brynjúlfur. Mynd:Brynjulfur_lilja.jpg|t...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Lilja Þorleifsdóttir.
Lilja og Brynjúlfur.
Brynjúlfur og Lilja.

Lilja Þorleifsdóttir húsfreyja fæddist á Gjögri í Strandasýslu 17. júní 1922 og lést 4. september 2008.
Foreldrar hennar voru Þorleifur Friðrik Þorleifsson bóndi og sjómaður í Þorleifshúsi á Gjögri, f. 8. september 1891 á Kjörvogi í Strandas., d. 12. október 1964, og kona hans Hjálmfríður Ragnheiður Sigurbjörg Hjálmarsdóttir húsfreyja, f. 18. mars 1896 á Gjögri, d. 15. júlí 1973.

Börn Hjálmfríðar og Þorleifs, - í Eyjum voru:
1. Lilja Þorleifsdóttir húsfreyja, f. 17. júní 1922, d. 4. september 2008.

2. Klara Þorleifsdóttir vinnukona, fiskverkakona, starfsmaður á sjúkrahúsi, f. 25. júlí 1926, d. 30. janúar 2011.
3. Hjálmar Þorleifsson rafvirki, f. 15. desember 1927, d. 22. janúar 2011.

Lilja var með foreldrum sínum í æsku og fluttist með þeim að Litlanesi inn af Gjögri.
Hún réri til fiskjar með afa sínum og starfaði við þvotta á Djúpavík á sumrum.
Lilja og Brynjólfur kynntust á Djúpavík, þar sem Brynjúlfur var rafvirki við síldarverksmiðjuna. Hún fluttist til Eyja 1947 og þau giftu sig 1948. Þau bjuggu í Breiðholti, byggðu Hólagötu 39 1955 og bjuggu þar uns þau fluttust í Kópavog 1999, en 2006 fluttu þau til Eyja og bjuggu að Áshamri 5.
Um tíma vann Lilja í þvottahúsinu Straumi og í Lifrarsamlaginu.
Lilja lést á Sjúkrahúsinu 2008. Brynjólfur býr í Baldurshaga.


I. Maður Lilju, (21. desember 1948), var Brynjúlfur Jónatansson frá Breiðholti, rafvirkjameistari, f. 23. júní 1924.
Börn þeirra:
1. Steinunn Brynjólfsdóttir húsfreyja, nam sálarfræði, lífeindafræðingur, f. 30. september 1948, d. 19. ágúst 2008.
2. Ragnheiður Brynjúlfsdóttir húsfreyja, viðskiptafræðingur, skrifstofustjóri, f. 22. febrúar 1952, d. 4. júlí 2011.
3. Hjálmar Brynjúlfsson rafvirkjameistari, f. 22. mars 1953.
4. Jónatan Brynjúlfsson rafvirkjameistari, f. 11. mars 1954, d. 17. mars 1984.
5. Anna Brynjúlfsdóttir starfsmaður á röntgenstofu Domus Medica, f. 13. júlí 1955.
6. Rúnar Páll Brynjúlfsson skrifstofumaður, tæknimaður hjá Valitor, f. 9. ágúst 1958.
7. Brynhildur Brynjúlfsdóttir húsfreyja, starfsmaður hjá Arionbanka, f. 10. janúar 1960.
Fósturdóttir hjónanna er
8. Steinunn Jónatansdóttir hjúkrunarfræðingur, vinnur að doktorsprófi í Kanada, f. 20. september 1973. Hún er dóttir Jónatans Brynjúlfssonar og konu hans Árnýjar Sigríðar Baldvinsdóttur.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Morgunblaðið 13. september 2008. Minning.
  • Prestþjónustubækur.
  • Rafvirkjatal. Ritstjóri: Þorsteinn Jónsson, Gunnar Guðmundsson og fleiri. Þjóðsaga hf. 1995.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.