Laufás

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 25. júlí 2005 kl. 11:45 eftir Simmi (spjall | framlög) Útgáfa frá 25. júlí 2005 kl. 11:45 eftir Simmi (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Húsið Laufás stóð við Austurveg 5 og var áður fyrr Vestasti-HlaðbærVilborgarstöðum. Húsið var byggt af Jóni Á. Kristjánssyni.

Árið 1905 keypti Þorsteinn Jónsson húsið og flutti þangað inn ásamt konu sinni Elínborgu Gísladóttur en lét hann rífa það árið 1912 og byggði nýtt hús að Laufási. Var þetta nýja hús byggt úr timbri ofan á steyptum kjallara og með rúmgóðu risi. Þorsteinn var mikill útgerðarmaður og var einn af upphafsmönnum vélbátaútgerðar í Eyjum.

Fyrir gosið 1973 bjuggu þar Dagný, dóttir Þorsteins, og maður hennar Bogi Finnbogason, ásamt tveimur börnum sínum.


Heimildir

  • Guðjón Ármann Eyjólfsson: Vestmannaeyjar - byggð og eldgos. Reykjavík 1973.