Lóa Ágústsdóttir (Baldurshaga)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Lóa Ágústsdóttir.

Lóa Ágústsdóttir frá Baldurshaga, húsfreyja fæddist 13. október 1920 og lést 1. apríl 2003.
Foreldrar hennar voru Ágúst Árnason í Baldurshaga, kennari, smiður, f. 18. ágúst 1871, d. 2. apríl 1957, og kona hans Ólöf Ólafsdóttir húsfreyja, f. 28. nóvember 1884, d. 21. júlí 1963.

Börn Ólafar og Ágústs:
1. Guðrún Ágústsdóttir, f. 21. júlí 1907, d. 1. mars 2003.
2. Sigríður Ágústsdóttir, f. 13. október 1910, d. 17. september 2000.
3. Margrét Ágústsdóttir, f. 1. júní 1914, d. 20. maí 1998.
4. Lóa Ágústsdóttir, f. 13. október 1920 í Baldurshaga, d. 1. apríl 2003.
Fósturbörn Ólafar og Ágústs:
5. Þuríður Guðrún Vigfúsdóttir húsfreyja í Vatnsdal í Fljótshlíðarhreppi , f. 12. mars 1900, d. 30. ágúst 1946.
6. Óskar Guðjónsson, f. 13. febrúar 1926, d. 8. mars 2001. Hann var sonur Þuríðar Guðrúnar og Guðjóns Úlfarssonar.

Lóa var með foreldrum sínum í æsku, varð gagnfræðingur í Gagnfræðaskólanum í Eyjum 1937.
Hún fluttist til Reykjavíkur á fjórða áratugnum, bjó á Hringbraut 30 við giftingu 1942. Þau Karl eignuðust þrjú börn, en skildu.

I. Maður Lóu, (13. október 1942 í Eyjum), var Karl Jónsson rakari, kaupmaður, lögreglumaður, gangavörður, f. 11. desember 1919 í Háagarði, d. 1. maí 2011 á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja.
Börn þeirra:
1. Ólöf Ágústa Karlsdóttir, f. 30. apríl 1944. Barnsfaðir hennar Herbert K. Gregory. Maður hennar Sigurjón Jóhannsson.
2. Sverrir Karlsson sjómaður, bifreiðastjóri, lagermaður, f. 29. ágúst 1946, d. 28. mars 2011. Kona hans Svanbjörg Clausen.
3. Sólveig Jónína Karlsdóttir, f. 11. júlí 1955. Maður hennar Magnús Þórður Guðmundsson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.