Lárus Kristjánsson (Heiðarbrún)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.
Lárus Kristjánsson.

Lárus Kristjánsson frá Heiðarbrún, trésmiður fæddist 28. ágúst 1929 á Heiðarbrún og lést 19. júlí 2012.
Foreldrar hans voru Kristján Jónsson frá Arngeirsstöðum í Fljótshlíð, trésmíðameistari, f. 13. mars 1882, d. 19. ágúst 1957, og kona hans Elín Oddsdóttir frá Ormskoti í Fljótshlíð, húsfreyja f. 27. janúar 1889, d. 19. mars 1965.

Börn Elínar og Kristjáns:
1. Óskar Kristjánsson, f. 27. janúar 1907 á Gilsbakka, d. 11. janúar 1908.
2. Óskar Kristjánsson, f. 17. apríl 1908 á Gilsbakka, d. 20. ágúst 1980.
3. Ólafur Ágúst Kristjánsson, f. 12. ágúst 1909 á Garðstöðum, d. 21. apríl 1989.
4. Oddgeir Kristjánsson, f. 16. nóvember 1911, d. 18. febrúar 1966.
5. Andvana stúlka, f. 3. október 1912 á Garðstöðum.
6. Laufey Sigríður Kristjánsdóttir, f. 30. desember 1913 á Heiðarbrún, d. 5. október 1994.
7. Jóna Margrét Kristjánsdóttir, f. 13. janúar 1915 á Heiðarbrún, d. 2. janúar 1971.
8. Friðrik Kristjánsson, f. 11. janúar 1916 á Heiðarbrún, d. 7. júlí 1916.
9. Klara Kristjánsdóttir, f. 8. júlí 1917 á Heiðarbrún, d. 23. janúar 1993.
10. Guðleif Hulda Kristjánsdóttir, f. 22. júlí 1918 á Heiðarbrún, d. 16. desember 1918.
11. Gísli Kristjánsson, f. 17. febrúar 1920 á Heiðarbrún, d. 26. febrúar 1995.
12. Kristbjörg Kristjánsdóttir, f. 8. apríl 1921 á Heiðarbrún, d. 24. nóvember 1999.
9. Klara Kristjánsdóttir, f. 8. júlí 1917 á Heiðarbrún, d. 23. janúar 1993.
10. Guðleif Hulda Kristjánsdóttir, f. 22. júlí 1918 á Heiðarbrún, d. 16. desember 1918.
11. Gísli Kristjánsson, f. 17. febrúar 1920 á Heiðarbrún, d. 26. febrúar 1995.
12. Kristbjörg Kristjánsdóttir, f. 8. apríl 1921 á Heiðarbrún, d. 24. nóvember 1999.
13. Haraldur Kristjánsson, f. 22. febrúar 1924 á Heiðarbrún, d. 12. september 2002.
14. Andvana drengur, f. 4. september 1927.
15. Lárus Kristjánsson, f. 28. ágúst 1929 á Heiðarbrún, d. 19. júlí 2012.
Sonur Kristjáns og hálfbróðir systkinanna var
16. Svanur Ingi Kristjánsson verslunarmaður, húsasmíðameistari, f. 9. febrúar 1922, d. 22. nóvember 2005.

Lárus var með foreldrum sínum á Heiðarbrún 1930, á Breiðabólstað 1934 og enn 1949.
Hann lærði trésmíðaiðn og varð húsasmiður.
Þau Kristjana Guðrún giftu sig 1953 og bjuggu á Brimhólabraut 29, eignuðust sex börn.
Að síðustu bjuggu þau í Hraunbúðum.
Kristjana Guðrún lést í júní 2012 og Lárus í júlí 2012.

Kona Lárusar, (21. nóvember (1953), var Kristjana Guðrún Einarsdóttir frá Kollsá í Staðarsókn í Grunnavíkurhreppi, húsfreyja, fiskverkakona, f. 10. október 1926 á Kollsá, d. 25. júní 2012.
Börn þeirra:
1. Ólafur Einar Lárusson kennari, f. 4. mars 1954 að Brimhólabraut 15.
2. Kristín Auður Lárusdóttir húsfreyja, verslunarmaður, f. 26. september 1957 að Brimhólabraut 15.
3. Hrönn Lárusdóttir húsfreyja, bóndi í Pétursey í Mýrdal, f. 16. desember 1958.
4. Elín Lárusdóttir húsfreyja, leiðbeinandi, f. 4. febrúar 1961.
5. Iðunn Lárusdóttir húsfreyja, skrifstofumaður, f. 7. febrúar 1962.
6. Lára Kristjana Lárusdóttir húsfreyja, verslunarmaður, f. 31. janúar 1965.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.