Lára Þórðardóttir (Skálanesi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Álfheiður Lára Þórðardóttir.

Álfheiður Lára Þórðardóttir frá Skálanesi, húsfreyja fæddist 26. febrúar 1928 á Akureyri og lést 28. desember 2005.
Foreldrar hennar voru Þórður Jónsson formaður og skipasmiður á Bergi og í Vallartúni, f. 10. júní 1887, d. 1. febrúar 1939, og þriðja kona hans Kristbjörg Stefánsdóttir húsfreyja á Akureyri, í Keflavík, Vallanesi, síðar í Skálanesi, f. 12. júlí 1896, d. 8. mars 1984.

Börn Kristbjargar og Þórðar voru:
1. Álfheiður Lára Þórðardóttir í Skálanesi, f. 26. febrúar 1928, d. 28. desember 2005.
2. Oddný Guðbjörg Þórðardóttir í Skálanesi, f. 15. ágúst 1929, d. 23. október 1998.
3. Ingibjörg Jónína Þórðardóttir í Skálanesi, f. 11. ágúst 1932.
4. Þóra Þórðardóttir í Skálanesi, f. 16. apríl 1939.

Börn Þórðar og Kristínar Guðjónsdóttur bústýru hans:
5. Jónína Ásta Þórðardóttir, f. 27. nóvember 1918, d. 28. september 1995.
6. Bergþóra Þórðardóttir húsfreyja, f. 16. mars 1924, d. 16. júlí 2004.

Barn Þórðar og Sigríðar Guðmundsdóttur frá Stóru-Hildisey í A-Landeyjum, síðar húsfreyja í Hamragörðum u. V-Eyjafjöllum, vinnukona hjá honum frá 1909, f. 13. ágúst 1886, d. 19. júní 1956.
Barn þeirra var
3. Jóhann Gunnar Þórðarson, f. 9. mars 1919, d. 9. febrúar 1920.

Barn Þórðar og Guðrúnar Þórðardóttur:
8. Jón Sigurður Þórðarson skipasmiður, f. 17. júní 1921, d. 7. maí 2017.

Barn Þórðar og Petrúnar Ólafar Ágústsdóttur.
9. Sveinbjörg Alma Þórðardóttir, f. 22. desember 1925, d. 28. mars 1936 af Keflavíkurbrunanum.

Lára var með foreldrum sínum í æsku, en faðir hennar lést, er hún var tæpra ellefu ára. Hún var með þeim á Akureyri, í Keflavík og fluttist með þeim að Vallartúni 1937. Þar lést faðir hennar 1939.
Þau Kristbjörg móðir hennar höfðu nýlega keypt Skálanes og þangað flutti móðir hennar með dætur sínar.
Lára lauk gagnfræðaprófi í Gagnfræðaskólanum, nam við Húsmæðraskólann Ósk á Ísafirði, hóf nám við Hjúkrunarskólann, en veiktist af berklum og dvaldi þrjú ár á Vífilsstöðum.
Hún snéri til Eyja og vann á skrifstofu hjá Einari Sigurðssyni.
Þau Ísak Þórir giftu sig 1965, fluttust í Kópavog. Þar fæddist þeim eina barn þeirra 1966.
Álfheiður Lára lést 2005.

I. Maður Álfheiðar Láru, (27. nóvember 1965), er Ísak Þórir Þorkelsson vélvirkjameistari, f. 28. september 1932. Foreldrar hans voru Þorkell Guðmundsson járnsmíðameistari í Tungu við Fífuhvammsveg í Kópavogi, f. 9. ágúst 1906 á Fjalli á Skeiðum, Árn., d. 12. ágúst 1990, og kona hans Bergþóra Rannveig Ísaksdóttir húsfreyja, f. 13. júní 1905 á Bakka í Garðahreppi, d. 7. janúar 1997.
Barn þeirra:
1. Þórður Ísaksson fiskiðnaðarsérfræðingur, f. 8. maí 1966 í Kópavogi, ókvæntur.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.