Kvenfélagið Líkn

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 21. apríl 2009 kl. 08:45 eftir Inga (spjall | framlög) Útgáfa frá 21. apríl 2009 kl. 08:45 eftir Inga (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Kvenfélagskonur í sumarferð í kringum 1940
Kvenfélagskonur í sumarferð í kringum 1940

Aðalhvatamaðurinn að stofnun Kvenfélagsins Líknar var læknirinn Halldór Gunnlaugsson. Hann fann að sterk þörf var fyrir samhug fólks og því fannst honum kjörið að stofna kvenfélag. Var félagið stofnsett þann 14. febrúar 1909. Forstöðukona félagsins var Jóhanna Árnadóttir.

Halldór gaf félaginu nafn sem hann taldi að væri viðeigandi samkvæmt tilgangi þess sem var að líkna og hlynna að bágstöddum sjúklingum í Vestmannaeyjum svo og til þess að veita aðra þá aðstoð sem félagið sæi sér fært um að veita hverju sinni.

Stofnendur félagsins voru 23 konur:

Á stofnfundi félagsins afhenti Halldór konunum sparisjóðsbók með 200 króna inneign. Með því gátu konurnar hafist handa. Talið er að þetta hjálparstarf sé fyrsti vísirinn að heimahjúkrun í Vestmannaeyjum.



Heimildir

  • Anna Þorsteinsdóttir. Eyjaskinna 5. 1992.