Kristín Ólafsdóttir (Litlakoti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. júlí 2018 kl. 17:42 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. júlí 2018 kl. 17:42 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Kristín Ólafsdóttir húsfreyja á Kirkjubæ fæddist 8. september 1868 í Litlakoti og lést 6. janúar 1944.
Foreldrar hennar voru Ólafur Einarsson sjómaður í Litlakoti, f. 7. október 1836, d. 6. apríl 1916, og kona hans Guðríður Sigurðardóttir húsfreyja, f. 19. mars 1834, d. 25. júlí 1890.

Kristín var með fjölskyldu sinni í Litlakoti 1870 og 1880. Hún var vinnukona hjá Einari Bjarnasyni og Steinvöru Lárusdóttur 1890.

Þau Ágúst Sigurður voru í húsmennsku á Kolableikseyri við Mjóafjörð eystri 1901-1902 og á Melum þar 1902-1903. Þá fluttust þau til Eyja.
Kristín var húsfreyja á Kirkjubæ 1910 með Ágústi Sigurði og þrem dætrum þeirra. Ágústa Kristín tveggja ára var mætt. Fjórða dóttirin Anna Oddný var tökubarn á Breiðabliki hjá Gísla J. Johnsen og Önnu Ásdísi Gísladóttur Johnsen.
Kristín og Ágúst bjuggu í Skálanesi 1920 og hjá þeim voru Ingibjörg og Ágústa Kristín dætur þeirra.

I. Barnsfaðir Kristínar var Guðmundur Jesson verkamaður, f. 13. nóvember 1867, d. 19. apríl 1931.
Barnið var
1. Guðríður Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 12. maí 1893, d. 24. júní 1984. Hún var kona Stefáns Vilhjálmssonar á Litlu-Grund og í Hábæ, f. 24. ágúst 1890.

II. Maður Kristínar, (1898) var Ágúst Sigurður Sveinbjörnsson sjómaður, f. 18. ágúst 1865 á Skálanesi við Seyðisfjörð, d. 22. desember 1934.
Börn þeirra hér:
2. Petrún Ólöf Ágústsdóttir, (nefnd Petrína við jarðsetningu), síðast á Svalbarðseyri við Eyjafjörð, f. 14. maí 1898 á Nesi í Norðfirði, d. 5. mars 1985.
3. Anna Oddný Ágústsdóttir Olsen húsfreyja, f. 20. ágúst 1900 í Norðfirði, d. 12. maí 1859. Bjó í Reykjavík
4. Ingibjörg Ágústsdóttir húsfreyja, síðast á Breiðabóli á Svalbarðsströnd, f. 16. desember 1903, d. 10. janúar 1991.
5. Kristín Ágústa Ágústsdóttir, f. 5. september 1906, d. 27. september 1906.
6. Ágústa Kristín Ágústsdóttir húsfreyja og kaupkona, f. 14. september 1908, d. 20. janúar 2004. Maður I: Sverrir Júlíusson útgerðarmaður, alþingismaður, f. 12. október 1912, d. 1990. Maður II: Stefán Egilsson kaupmaður í Hafnarfirði, f. 4. mars 1918, d. 17. september 2009.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Mjófirðingasögur. Vilhjálmur Hjálmarsson. Bókaútgáfa Menningarsjóðs 1987-1990.
  • Morgunblaðið 30. janúar 2004. Minning Ágústu Kristínar.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.