Kristín Jónsdóttir (Hólnum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 12. september 2019 kl. 16:12 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. september 2019 kl. 16:12 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Kristín Jónsdóttir.

Kristín Jónsdóttir á Hólnum, Landagötu 18, húsfreyja fæddist 9. nóvember 1911 á Hafnarnesi í Fáskrúðsfirði og lést 1. nóvember 1992.
Foreldrar hennar voru Jón Níelsson bóndi, f. 21. ágúst 1883, d. 24. apríl 1953, og kona hans Guðlaug Halldórsdóttir húsfreyja, síðast í Hafnarfirði, f. 18. september 1892, d. 2. júní 1984.

Börn Guðlaugar og Jóns í Eyjum voru:
1. Kristín Jónsdóttir húsfreyja á Hólnum, Landagötu 18, f. 9. nóvember 1911, d. 1. nóvember 1992.
2. Steinunn Jakobína Jónsdóttir vinnukona hjá Kristínu 1930, síðar húsfreyja í Odda á Fáskrúðsfirði, f. 29. desember 1915, d. 5. febrúar 1999.
3. Halldór Jónsson sjómaður, útgerðarmaður, f. 28. ágúst 1919, d. 17. maí 1982 í Eyjum.

Kristín var með foreldrum sínum í æsku, í Steinholti á Hafnarnesi 1920.
Hún fluttist til Eyja 1927, eignaðist Adólf á Hólnum við Landagötu 1928, Jónu Guðlaugu þar 1930, bjó með Óskari í Framtíð, Hásteinsvegi 11 1930, eignaðist Aðalheiði á Grímsstöðum 1934, en bjó með Óskari og börnunum í Nýhöfn við manntal síðla árs 1934.
Þau bjuggu á Hólnum við fæðingu Guðmundu Eyglóar 1937 og þar bjuggu þau 1951 við fæðingu Hrefnu, en voru komin á Boðaslóð 27 við fæðingu Arnar 1953, og þar bjuggu þau meðan báðum entist líf.
Þau Kristín og Óskar giftu sig 1954.
Óskar lést 1986. Kristín dvaldi að síðustu í Hraunbúðum og lést 1992.

I. Maður Kristínar, (18. desember 1954), var Óskar Ólafsson frá Vestri-Torfastöðum í Fljótshlíð, síðan á Hólnum við Landagötu 18, en síðast á Boðaslóð 27, pípulagningameistari, f. 15. ágúst 1905, d. 23. janúar 1986.
Börn þeirra:
1. Adólf Óskarsson pípulagningamaður, afreksmaður í íþróttum, f. 30. nóvember 1928 á Hólnum við Landagötu 18, síðast í Hafnarfirði, d. 15. desember 2008. Kona hans Ásta Vigfúsdóttir.
2. Jóna Guðlaug Óskarsdóttir húsfreyja í Eyjum, f. 16. febrúar 1930 á Hólnum við Landagötu 18, d. 15. ágúst 2006. Maður hennar Kristleifur Magnússon.
3. Aðalheiður Óskarsdóttir húsfreyja, f. 8. nóvember 1934 á Skólavegi 27, Grímsstöðum. Maður hennar Þorleifur Sigurlásson.
4. Guðmunda Eygló Óskarsdóttir, f. 1. desember 1937 á Hólnum, Landagötu 18. Maður hennar Svavar Steingrímsson.
5. Kristín Ósk Óskarsdóttir, f. 14. október 1940 á Hólnum. Maður hennar Friðbjörn Kristjánsson.
6. Ólafur Óskarsson pípulagningamaður, f. 27. maí 1944 á Hólnum, d. 9. ágúst 1986. Kona hans Harpa Njálsdóttir Andersen.
7. Albína Elísa Óskarsdóttir fiskverkakona, f. 25. júní 1945 á Hólnum, d. 29. júní 2008. Maður Huginn Sveinbjörnsson.
8. Hrefna Óskarsdóttir, f. 30. apríl 1951 á Sj. Maður hennar Kristján Ingólfsson.
9. Örn Óskarsson pípulagningameistari í Reykjavík, f. 18. febrúar 1953 að Boðaslóð 27. Kona Hulda Kjærnested.
10. Guðrún Óskarsdóttir, f. 12. nóvember 1957 að Boðaslóð 27. Maður hennar Almar Hjarðar.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.