Kristný Ólafsdóttir (Gíslholti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. desember 2019 kl. 13:48 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. desember 2019 kl. 13:48 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Kristný Ólafsdóttir.

Kristný Ólafsdóttir frá Gíslholti, fiskvinnslukona fæddist 8. júlí 1921 á Raufarfelli u. A-Eyjafjöllum og lést 8. júlí 2006 á Sjúkrahúsinu.
Foreldrar hennar voru Ólafur Vigfússon formaður í Gíslholti, f. 21. ágúst 1891, d. 15. maí 1974 og kona hans Kristín Jónsdóttir húsfreyja, f. 22. mars 1898, d. 19. apríl 1969.

Börn Kristínar og Ólafs:
1. Vigfús Ólafsson kennari, skólastjóri, f. 13. apríl 1918 að Raufarfelli u. A-Eyjafjöllum, d. 25. október 2000.
2. Kristný Ólafsdóttir fiskverkakona, f. 8. júlí 1921 að Raufarfelli u. Eyjafjöllum, d. 24. nóvember 2006.
3. Jóna Margrét Ólafsdóttir, f. 13. apríl 1924 á Vesturhúsum, d. 4. ágúst 1944.
4. Sveinn Ágúst Ólafsson útgerðarmaður, ,,trillukarl“, f. 1. ágúst 1927 í Gíslholti, d. 29. júlí 2003.
5. Sigríður Ólafsdóttir húsfreyja, f. 22. júlí 1931 í Gíslholti, d. 30. júní 2018.
6. Guðjón Þorvarður Ólafsson skrifstofumaður, gjaldkeri, myndlistarmaður, bæjarlistamaður, f. 1. nóvember 1935 í Gíslholti.
Fóstursonur Kristínar og Ólafs, sonur Jónu Margrétar:
7. Jón Ólafur Vigfússon vélstjóri, forstjóri í Hafnarfirði, f. 18. júlí 1944.

Kristný var með foreldrum sínum í æsku, fluttist með þeim til Eyja 1922. Hún var með þeim á Vesturhúsum, síðan í Gíslholti og þar bjó hún lengst, en síðar í Birkihlíð.
Kristný var fiskvinnslukona og vann lengi í Fiskiðjunni.
Hún var ógift og barnlaus.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.