Kristján Vilmundarson (Eyjarhólum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. nóvember 2020 kl. 18:24 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. nóvember 2020 kl. 18:24 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Viglundur færði Kristján Vilmundarson á Kristján Vilmundarson (Eyjarhólum))
Fara í flakk Fara í leit
Kristján Vilmundarson.

Kristján Vilmundarson frá Eyjarhólum við Hásteinsveg 20, bifreiðastjóri fæddist 9. júní 1930 á Hvoli við Heimagötu 12a og lést 1. janúar 2016 á Landspítalanum.
Foreldrar hans voru Vilmundur Bernharð Kristjánsson frá Stóru-Brekku í Fljótum í Skagafirði, sjómaður, vélstjóri, bóndi, f. 6. mars 1901 á Einarsstöðum í Kræklingahlíð í Eyjafirði, d. 6. júní 1964 í Hafnarfirði, og kona hans Ingigerður Guðnadóttir frá Sauðagerði í Stokkseyrarsókn, húsfreyja, f. þar 6. janúar 1901, d. 31. desember 1988 á Borgarspítalanum.

Kristján var með foreldrum sínum í æsku, flutti með þeim að Stóru-Brekku í Fljótum 1940 og síðan að Illugastöðum þar.
Hann vann búi foreldra sinna, en síðan í vegavinnu og í verksmiðju á Siglufirði. Eftir flutning til Reykjavíkur vann hann ýmis störf, en í tuttugu ár var hann bifreiðastjóri hjá glerverksmiðjunni Íspan.
Þau Erla giftu sig 1954, eignuðust fjögur börn. Þau bjuggu lengi á Fossvogsbletti 52, en að lokum í Ásgarði 67 frá 1971 meðan báðum entist líf.
Kristján lést 2016. Erla býr í Hæðargarði 35 í Reykjavík.

I. Kona Kristjáns, (9. júní 1954), er Erla Skagfjörð Jósefsdóttir húsfreyja, f. 21. mars 1930 á Sauðárkróki. Foreldrar hennar voru Jósef Skagfjörð Stefánsson frá Hvammi í Hjaltadal, Skagaf., trésmiður, f. 4. nóvember 1905, d. 6. maí 2000 á Sauðárkróki, og Elín Aðalbjörg Jóhannesdóttir frá Sauðárkróki, húsfreyja, f. 29. september 1905, d. 4. maí 1995 á Sauðárkróki.
Börn þeirra:
1. Helgi Skagfjörð Kristjánsson á Akureyri, f. 9. janúar 1951. Kona hans Sigurveig Þórlaugsdóttir.
2. Jósef Vilmundur Kristjánsson í Kópavogi, f. 25. desember 3. Kona hans Ingunn Björnsdóttir.
4. Vilmundur Bernharð Kristjánsson í Hveragerði, f. 25. október 1959. Kona hans Ingunn Hrefnudóttir.
5. Kolbrún Sjöfn Kristjánsdóttir í Reykjavík, f. 20. október 1963. Maður hennar Kristján Oddsson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.