Kristján Einarsson (Hvanneyri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 19. október 2018 kl. 11:39 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 19. október 2018 kl. 11:39 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Kristján Einarsson.

Kristján Einarsson á Hvanneyri, var fæddur að Ásólfsskála undir Eyjafjöllum 10. mars 1878 og lést 16. desember 1925. Um aldamótin 1900 fór hann til Vestmannaeyja og settist þar að. Hann varð fljótt formaður með opið skip en 1907 lét hann byggja mótorbát í samstarfi við fleiri menn. Var það báturinn Von VE 109 og var Kristján formaður þar til hún sökk suður af Vestmannaeyjum 2. maí 1909. Eftir það hætti Kristján formennsku.


Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.

Frekari umfjöllun

Kristján Einarsson sjómaður, formaður í Görðum og á Hvanneyri fæddist 10. mars 1878 og lést 16. desember 1925.
Foreldrar hans voru Einar Híerónýmusson bóndi, síðar verkamaður á Felli, f. 11. október 1849, d. 6. apríl 1922 og síðari kona hans Sigurborg Sigurðardóttir húsfreyja, f. 10. júní 1846, d. 13. október 1933.

Systkini Kristjáns í Eyjum voru
1. Sigurborg Einarsdóttir verkakona, húsfreyja í Fagurhól, f. 17. október 1884, d. 10. maí 1958.
Hálfbróðir hans, sammæddur, var
2. Magnús Magnússon skipstjóri og útgerðarmaður á Felli, f. 5. júlí 1874, d. 25. september 1940.
Fóstbróðir og systursonur, barn Sigurborgar systur hans var
3. Einar Vídalín Einarsson loftskeytamaður í Reykjavík, f. 28. apríl 1907, d. 4. október 1990.

Kristján var léttadrengur á Ásólfsskála 1890.
Hann fluttist frá Efri-Hól í Holtssókn til Eyja 1901, var vinnumaður í Batavíu á því ári, kvæntist Guðbjörgu frá Batavíu 1909. Þau bjuggu í Görðum 1910.
Þau reistu með Jóni Guðjónssyni húsið Hvanneyri 1912 og bjuggu þar. Kristján var bátsformaður um skeið, lést 1925.

Kona Kristjáns, (19. desember 1909), var Guðbjörg Guðmundsdóttir húsfreyja frá Batavíu, f. 18. október 1891, d. 27. apríl 1965.
Börn þeirra hér:
1. Ingibergur Kristjánsson, f. 9. mars 1910, d. 25. mars 1910.
2. Ingibjörg Þorvaldsína Kristjánsdóttir, f. 13. október 1911, d. 1930.
3. Guðmundur Kristjánsson, f. 23. júní 1915, d. 29. mars 1986.
4. Sigurborg Sigríður Kristjánsdóttir, f. 4. júlí 1916, d. 15. september 1981.
5. Guðrún Magnússína Kristjánsdóttir, f. 2. janúar 1919, d. 15. apríl 1994.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.