Kristján Guðni Sigurjónsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.
Kristján Guðni Sigurjónsson.

Kristján Guðni Sigurjónsson frá Reykjadal sjómaður, vélstjóri, skipstjóri, fiskverkandi fæddist 3. ágúst 1931 í Ólafsfirði og lést 15. desember 1983.
Foreldrar hans voru Sigurjón Jónsson vélstjóri, formaður frá Ólafsfirði, f. 2. janúar 1903 á Brimnesi þar, d. 9. apríl 1978, og kona hans María Þuríður Kristjánsdóttir frá Reykjadal, f. 30. apríl 1908 í Ási, d. 21. desember 1992.

Börn Maríu og Sigurjóns voru:
1. Kristján Guðni Sigurjónsson, f. 1. febrúar 1928, d. sama ár.
2. Guðfinnur Sigurjónsson verkamaður í Keflavík, f. 26. september 1929 í Ólafsfirði, d. 23. maí 1994. Kona hans var Helga Árnadóttir Bachmann.
3. Kristján Guðni Sigurjónsson, sjómaður, vélstjóri, skipstjóri, framkvæmdastjóri í Eyjum, f. 3. ágúst 1931 í Ólafsfirði, d. 15. desember 1983. Kona hans var Sigurveig Margrét Ólafsdóttir frá Siglufirði, húsfreyja.
4. Jón Ármann Sigurjónsson vélstjóri, netagerðarmeistari í Þorlákshöfn og víðar, f. 15. desember 1940 í Reykjadal við Brekastíg. Kona hans er Sigríður Kristjánsdóttir húsfreyja, bókhaldari.

Kristján var með foreldrum sínum í æsku.
Hann eignaðist Magnús Þór 1947 með Þórunni Magnúsdóttur. Hann var ættleiddur.
Kristján og Margrét eignuðust Ólaf Örn á Siglufirði 1948.
Kristján tók hið minna vélstjórapróf í Eyjum 1949 og smáskipapróf 1960.
Hann var vélstjóri hjá Sigurjóni föður sínum 1950, hjá Hraðfrystistöð Vestmannaeyja 1955, skipstjóri 1957-1973 og framkvæmdastjóri Eyjafisks hf. 1978-1983.
Margrét fluttist til Eyja 1950. Þau giftu sig 1952, eignuðust 10 börn. Þau bjuggu í fyrstu á Hásteinsvegi 7 og enn 1956, í Birtingarholti, Vestmannabraut 61 1958 og enn 1964, en síðar á Kirkjuvegi 26. Þar bjuggu þau við Gos 1973 og einnig, er þau fluttust heim.
Kristján lést af slysförum 1983. Margrét bjó á Kirkjuvegi 26 til andláts. Hún lést 1995.

I. Barnsmóðir Kristjáns Guðna var Þórunn Magnúsdóttir, síðar húsfreyja í Neskaupstað, f. 25. mars 1930 á Svalbarði, d. 15. febrúar 2013 á Sjúkrahúsinu.
Barn þeirra:
1. Magnús Þór Kristjánsson, f. 15. janúar 1947. Hann varð kjörbarn móðurforeldra sinna undir nafninu Magnús Þór Magnússon.

II. Kona Kristjáns, (26. desember 1952), var Sigurveig Margrét Ólafsdóttir húsfreyja, verkakona, f. 14. ágúst 1929 á Siglufirði, d. 5. júní 1995 á Sjúkrahúsinu.
Börn þeirra:
1. Ólafur Örn Kristjánsson vélfræðingur í Ástarlíu, f. 1. apríl 1948 á Siglufirði. Kona hans Róma Kristjánsson.
2. Sigurjón Marvin Kristjánsson vélstjóri, byggingatæknifræðingur í Noregi, f. 7. júní 1952 að Hásteinsvegi 7.
3. Anna María Kristjánsdóttir húsfreyja í Eyjum, atvinnurekandi, f. 10. desember 1953 að Hásteinsvegi 7. Maður hennar Hörður Þórðarson.
4. Hrafnhildur Kristín Kristjánsdóttir húsfreyja, aðstoðarkona tannlæknis, f. 26. apríl 1955 að Hásteinsvegi 7.
5. Trausti Kristjánsson stýrimaður, f. 20. september 1956. Sambúðarkona hans Eygló Eiríksdóttir.
6. Fanney Harða Guðmunda Kristjánsdóttir húsfreyja í Borgarnesi, f. 16. ágúst 1958. Sambúðarmaður hennar Ari Björnsson.
7. Kristján Kristjánsson vélstjóri, rafvirkjameistari í Reykjavík, f. 18. október 1959. Fyrrum kona hans Kolbrún Kolbeinsdóttir.
8. Margrét Elísabet Kristjánsdóttir húsfreyja, leikskólakennari í Eyjum, f. 26. nóvember 1962. Sambúðarmaður hennar Sigurður Björn Alfreðsson.
9. Bjarki Kristjánsson stýrimaður í Eyjum, f. 18. febrúar 1964. Sambúðarkona hans Lára Kristjana Lárusdóttir.
10. Brynjar Kristjánsson framreiðslumaður, stálskipasmiður í Eyjum, f. 13. október 1968. Kona hans Ragnheiður Borgþórsdóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vélstjóra- og vélfræðingatal. Ritstjórar: Þorsteinn Jónsson og Franz Gíslason. Þjóðsaga 1996 og 1997.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.